Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Þórarinn Þórarinsson skrifar 30. maí 2026 16:04 Stefán Atli Rúnarsson, sem átti sæti á framboðslistra Framsóknar í Kópavogi, segist hvergi hafa komið nærri því að bæjarstjórinn, Ásdís Kristjánsdóttir, hafi mælt með Girnó kökunum á samfélagsmiðlum. Vísir/Samsett Framsóknarmaðurinn Stefán Atli Rúnarsson segist alls ekki vera með puttana í kökukrús veisluþjónustunnar Girnó í Kópavogi og hafi því ekkert haft með það að gera að bæjarstjóranum Ásdísi Kristjánsdóttur voru sendar kökur sem hún smakkaði og mærði á myndbandi sem hefur vakið athygli á TikTok og Instagram.
Þótt veisluþjónustan Girnó cookies í Kópavogi hefji ekki sölu á bakkelsi sínu fyrr en á mánudaginn hefur hún þegar vakið talsverða athygli í krafti myndbandsins sem sýnir Ásdísi gæða sér á sítrónuköku frá Girnó og afmælisköku, sem hún segir vera „extra djúsí“. Niðurstaða bæjarstjórans að smakkinu loknu er að þetta sé „geggjað“ og að það verði „gott að hafa svona í Kópavogi“. DV greindi á fimmtudagskvöld fyrst frá myndbandinu og spurningum sem hljóti að vakna þegar kjörinn fulltrúi tekur beinan þátt í slíku markaðs- og kynningarstarfi. View this post on Instagram A post shared by Girnó Cookies (@girno.cookies) Einnig var athygli vakin á því að Stefán Atli Rúnarsson, sem skipaði 9. sætið á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi, væri skráður fyrir reikningum Girnó á samfélagsmiðlum. „Vinur minn sendi mér hlekk í gærkvöld á DV-frétt um að Ásdís bæjarstjóri hefði verið að smakka svona Girnó-kökur og að þar kæmi fram að ég væri skráður fyrir fyrirtækinu á samfélagsmiðlum,“ segir Stefán Atli, viðskiptafræðingur og Framsóknarmaður. Engin pólitísk kökukaup „Þau hjá Girnó fengu mig til að hjálpa sér að koma þessu á koppinn fyrir svona um það bil ári síðan. Ég var að hjálpa þeim í markaðsmálunum og bjó til aðganga á TikTok og Instagram og þannig. Ég steig svo bara til hliðar og þau sjá bara um þetta núna,“ segir hann og ítrekar að aðkomu hans að Girnó hafi lokið fyrir um það bil ári síðan. Aðspurður segist hann því hvorki hafa fært Ásdísi kökurnar né haft milligöngu um að þær bærust henni. Þótt flokkar þeirra Ásdísar hafi starfað saman í meirihluta bæjarstjórnar fram að kosningum sé alls ekki um neinn pólitískan skandal að ræða. „Gervigreindin er það helsta í fréttum af mér núna,“ segir Stefán Atli sem hefur haft meira en nóg að gera undanfarið sem leiðbeinandi um notkun gervigreindar og meðal annars haldið fjölda námskeiða fyrir Félag eldri borgara. Vel heppnað opnunaratriði „Ég er búin að vera að þróa þær í ár og við erum búin að vera að undirbúa þetta núna í eitt og hálft ár eitthvað svoleiðis. Þannig að við erum búin að vera að þróa þetta rólega svo þær verði fullkomnar,“ segir bakarinn Jónína Guðný Jóhannsdóttir um kökurnar sem heilluðu bæjarstjóra Kópavogs svo mjög að eftir hefur verið tekið. Á samfélagsmiðlunum.„Við erum að fara að opna fyrir pantanir núna 1. júní og byrjum þá að taka við þeim á heimasíðunni okkar.“ Afmæliskakan og sítrónu ostakakan frá Girnó virðast bera nafn með rentu ef eitthvað er að marka útlitið og ummæli bæjarstjóra Kópavogs.Mynd/Instagram Girnó er einnig veisluþjónusta og fyrst um sinn verður því hægt að panta fyrir stærri hópa. „Og þegar það allt er komið í gang þá ætlum við að snúa okkur að einstaklingspöntunum.“Sjálf segist Jónína ekki koma að markaðsmálunum en telji félaga sína í þeirri deild síður en svo hafa þjófstartað með því að tromma upp með bæjarstjóra Kópavogs á Instagram og TikTok nokkrum dögum fyrir formlega opnun vefsíðunnar.Þetta hafi verið gert til þess að grípa athygli fjöldans „og fá fólk til að fylgjast með okkur og sjá hvað gerist næst en það munu bætast við nýir hlutir á matseðilinn með tímanum.“
TikTok Kópavogur Matur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira