Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 23. maí 2026 15:01 Nú ræðum við um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin fær tækifæri til að ákveða hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er mikilvægt að hafa í huga að ef þjóðin segir já við því verður önnur þjóðaratkvæðagreiðsla haldin þegar samningur liggur fyrir. Þá fyrst verður tekin afstaða til þess hvort Ísland gangi í Evrópusambandið eða ekki. Í þessari umræðu takast eðlilega á ólík sjónarmið um kosti og galla aðildar. Í ræðu á Alþingi í vikunni benti Dagur B. Eggertsson á að íslensk heimili greiði um 100 milljarða króna á ári í hærri vexti vegna íslensku krónunnar. Því var svarað um hæl að hér væri um innistæðulaus loforð að ræða. En í grein á Vísi í dag fer Halldór Jörgen Olesen, sem heldur úti verdbolga.net, yfir gögnin og kemst að þeirri niðurstöðu að þessi tala sé líklega fremur varlega áætluð. Raunkostnaður íslenskra heimila vegna vaxtaálags krónunnar gæti verið enn meiri. Hundrað milljarðar á ári eru gríðarlegir fjármunir. En hvað þýðir það fyrir venjulegt fólk? Meðalheimili á Íslandi skuldar um 40 milljónir króna í húsnæðislánum. Vaxtamunurinn sem fylgir stöðugri mynt gæti þýtt eina til tvær milljónir króna í lægri vaxtagreiðslur á ári fyrir venjulega fjölskyldu. Fyrir ungt fólk og barnafjölskyldur getur það skipt sköpum. Það getur þýtt minna álag, meira öryggi, aukinn sparnað og fleiri möguleika til að byggja upp gott líf. Hvað með atvinnulífið? Hvað myndi það þýða fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki um allt land að vera með minni vaxtakostnað? Fyrir bændur sem þurfa að fjárfesta í vélum og aðstöðu? Fyrir fólk í nýsköpun og atvinnurekstri sem þarf að taka áhættu og byggja upp verðmæti? Fjármagnskostnaður skiptir öllu máli í litlu hagkerfi og á Íslandi hefur hann verið langtum hærri en víða annars staðar. Krónan hefur ekki sömu áhrif á alla því í raun búum við við tvöfalt kerfi. Stórfyrirtæki og stórútgerð geta tekið lán og gert upp í erlendri mynt með lægri og stöðugri vöxtum. Almenningur og smærri fyrirtæki sitja hins vegar uppi með íslensku krónuna og þann óstöðugleika sem henni fylgir. Núverandi kerfi eykur ójöfnuð og mismunar fólki og fyrirtækjum og sá mismunur mun bara aukast í náinni framtíð. Látum ekki hræða okkur frá framförum Mótrökin sem nú heyrast minna um margt á umræðuna sem átti sér stað áður en Ísland gekk inn í EES. Þá voru líka sagðar ófaraspár og alið á ótta um að Ísland myndi tapa sjálfstæði sínu og hagsmunum. Í dag eru flestir sammála um að EES-samningurinn hafi verið eitt mikilvægasta framfaraskref sem Ísland hefur stigið. Við eigum ekki að óttast það að ræða framtíð okkar af yfirvegun og sjálfstrausti. Að hefja viðræður jafngildir ekki inngöngu. Það þýðir einfaldlega að þjóðin fái tækifæri til að sjá samning og taka upplýsta ákvörðun um eigin framtíð. Við erum fullvalda þjóð með sterka stöðu, öflugt samfélag og skýra hagsmuni. Við eigum að nálgast slíkar viðræður af öryggi, ekki ótta. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar