Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar 23. maí 2026 12:01 Í umræðunni um komandi atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, sem á köflum er virkilega furðuleg, er ýmsu kastað fram og margir kveða sér hljóðs. Vitræn umræða virðist eiga undir högg að sækja og meira að segja fyrrum hátt settir aðilar samfélagsins fara með fleipur og tala gegn viðurkenndum staðreyndum. Það er dapurlegt. Smáríki Króatía, með um 4 milljónir íbúa, er nýjasta aðildarríki ESB, en landið gekk í sambandið árið 2013. Landið sótti um aðild árið 2003, en fyrst þurfti að ganga frá ýmsum hlutum, meðal annars vegna þess að Króatar voru hluti af hinu hræðilega borgarastríði í fyrrum Júgóslavíu á árunum 1991-1995. Miklir bardagar fóru fram í Króatíu, þó mestur hafi djöfulgangurinn verið í Bosníu-Hersegóvínu (nú umsóknarríki að ESB). Júgóslavía er í dag aðeins minningin ein. Ríki sem ganga í ESB greiða fyrir það ákveðið gjald, svona svipað og þegar einstaklingur gengur til dæmis í golfklúbb. Þetta gjald er hluti af þjóðarframleiðslu, í tilfelli Íslands yrði það um sennilega um 0.8% af þjóðarframleiðslu, samkvæmt Evrópuvef H.Í. Um það er þó mögulega hægt að semja. Bæði Bretar og Svíar fengu afslátt þegar þeir sömdu um aðild. Bretar gengu hins vegar úr ESB 2020, eins og frægt er orðið. Flestir þeirra sjá eftir því í dag. En með fullri aðild að ESB fá aðildarríkin hins vegar fullan aðgang að sjóðum þess, sem eru stórir. ESB er nefnilega samansafn af mörgum öflugustu hagkerfum heims og er þriðja stærsta efnahagskerfi heimsins samantekið, á eftir Bandaríkjunum og Kína. Úr þessum sjóðum er síðan veitt fjármagni til ýmislegra verkefna til hagsbóta fyrir aðildarríkin; uppbyggingar mannvirkja, byggðamála, almennra innviða og fleira slíkt. Sem og til rannsókna og vísinda, mennta og menningarmála, svo dæmi séu tekin. Veruleg aukning fjárfestingar Rannsóknir hafa sýnt að eftir aðild hefur erlend fjárfesting aukist verulega í því ríki sem gengið hefur í sambandið. Um allt að tugi prósenta. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða nýjasta dæmið, frá Króatíu. Það lítur svona út: Frá aðild hafa Króatar borgað um 5,2 milljarða evra í aðildargjöld. Á móti hafa þeir hins vegar fengið styrki og erlenda fjárfestingu upp á um 30 milljarða evra, eða um 3 milljarða evra að meðaltali á ári. Það eru um 450 milljarðar íslenskra króna árlega. Nettó-hagnaður Króatíu er því mikill. Árið 2013 þegar landið gekk í ESB var þjóðarframleiðsla á mann um 15.000 dollarar, en er í dag um 30.000 dollarar. Tvöföldun, takk fyrir. Útflutningur vöru og þjónustu hefur einnig aukist verulega, eða um allt að 70% til landa innan ESB. Frá þessu var sagt á vefsíðu The Dubrovnik Times, sem er króatískur fjölmiðill í hinni fornfrægu hafnarborg, Dubrovnik. Heildarútflutningur Króata árið 2013 var um 10 milljarðar evra, en var kominn í 25 milljarða evra árið 2025. Og hefur aldrei verið jafn mikill. Atvinnuleysi hefur farið úr um 18% í um 6%. Það er meira en 50% lækkun. Má ekkert taka tíma? Í umræðunni hér heima er því slegið fram að þetta sé svo ofboðslega dýrt allt saman að það taki þessu ekki. Og að þetta sé svo mikið vesen, taki t.d. svo mikinn tíma. Vissulega jú, þetta mun kosta einhverja peninga og tíma. En á sama tíma er fjármagni eytt í hluti (eða ekki), sem einnig kosta mikla peninga, en skila litlu. Til dæmis hefur dýpkun við Landeyjarhöfn frá árinu 2022 kostað rúmlega 7 milljarða (og stefnir í meira). Sjálf höfnin kostaði rúmlega 3 milljarða og hefur nýting hennar því miður verið langt undir væntingum. Góðir hlutir gerast hægt, segir máltækið. Svokölluð ,,innviðaskuld“ hérlendis er talinn vera um 600 milljarðar (viðhaldsþörf vega og annað slíkt). Sé ekkert í þessu gert, mun það kosta íslenskt samfélag mikið í framtíðinni. Mun sá kostnaður bara aukast. Möguleikar í boði Höfundur er þeirrar skoðunar að með fullri aðild að ESB opnist fyrir mikla möguleika á sviði bæði erlendrar og innlendrar fjárfestingar. Reynsla annarra þjóða af aðild að ESB sýnir það einfaldlega. Þess vegna er mér afstaða bæði SA og Samtaka iðnaðarins algerlega óskiljanleg. Mér sýnist það einfaldlega vera þannig að þessir stóru aðilar í atvinnulífinu vilji bara ekki skoða málið. Setningar á borð við ,,ESB er mjög áhugaverður markaður“ heyrast ekki. Hvers vegna? Um þessi mál og aðild Króata að ESB er hægt að finna allskonar efni um á netinu og það er ekki verið að fela neitt. Allt er uppi á borðum og upplýsingarnar bókstaflega liggja fyrir framan okkur. Það er bara að ná í þær. Um atkvæðagreiðsluna í sumar hér á landi er líka til fullt af upplýsingum. Króatía sjálfstæð og fullvalda með evruna En smáþjóðin Króatía (sjálfstæð og fullvalda!) nýtur nú fullrar aðildar að ESB og hefur farið alla leið, en landið tók upp evruna sem gjaldmiðil í ársbyrjun árið 2023. Tæp 80% Króata álíta að aðild að ESB hafi gagnast landinu vel, samkvæmt nýjum tölum úr könnunum á þessu ári. Við upptöku evru hefur erlend fjárfesting aukist enn frekar og traust gagnvart króatísku efnahagslífi. Á sama tíma erum við hér heima með krónu sem enginn býst við öðru af en verðbólgu, svimandi háum vöxtum og verðtryggingu. Er það íslenska framtíðin? Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar