Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson og Steinn Jóhannsson skrifa 22. maí 2026 09:03 Framlag til námsefnisgerðar hefur verið óviðunandi undanfarin ár. Í fjölmörgum námsgreinum í grunn- og framhaldsskóla er verið að notast við úrelt námsefni frá síðustu öld. Kennarar þurfa því að eyða miklum tíma í námsefnisgerð sem tekur tíma frá undirbúningi kennslu og öðrum störfum innan skólanna sem getur einnig leitt til mjög ólíkrar kennslu á milli skóla. Í skýrslu starfshóps um bókmenningarstefnu frá 2017 var fjallað sérstaklega um námsefni. Þar voru yfirvöld hvött til að sinna því lögbundna hlutverki sínu að sjá til þess að skólar hefðu aðgang að góðu námsefni - „styrkja og efla námsefnisgerð og auka það fjármagn sem skólar fái til kaupa á rafrænu efni.“ Slík ráðstöfun myndi án efa virka sem innspýting í íslenska námsefnisgerð. Í nýrri rannsókn Ingvars Sigurgeirssonar og Lilju M. Jónsdóttur um starfsumhverfi í grunnskólum kemur fram að kennarar verja mikilli vinnu í námsefnisgerð sem er talinn einn af álagsþáttum í starfi. Jafnframt er bent á að skortur á námsefni torveldi einstaklingsmið nám og veiki möguleika skóla til að mæta ólíkum þörfum nemenda. Þegar kennarar þurfa í sífellu að búa til eigið efni frá grunni, í stað þess að geta byggt á vönduðu og aðgengilegu námsefni, fer dýrmætur tími frá undirbúningi kennslu, eftirfylgd og faglegri þróun. Sláandi munur á framlagi til námsefnisgerðar hér og í Finnlandi kom fram í máli skýrsluhöfunda á fundi með skólastjórnendum. Á meðan um 8500 krónum er varið hér á landi árlega á hvern nemanda verja Finnar um 30 þúsund krónum á hvern nemanda. Komið hefur fram að sá kostnaður sem lagður er til námsefnisgerðar á Íslandi fer fyrst og fremst til þess að viðhalda áður útgefnu efni og að mjög litlu leyti fari fjármagn því til framleiðslu nýs námsefnis. Góð námsgögn forsenda öflugs skólastarfs Aukið fjármagn til námsefnisgerðar er ekki aðeins menntamál heldur mikilvægt vinnuumhverfismál og forsenda þess að skólar geti sinnt hlutverki sínu af metnaði og gæðum. Menntamálayfirvöld verða að leggja meiri metnað í að styðja við íslenska námsgagnagerð á öllum skólastigum. Það þarf bæði að tryggja stöðugri fjármögnun og skapa skýrari hvata til þróunar á fjölbreyttu námsefni, hvort sem um er að ræða prentað efni, stafrænar lausnir eða samþætt stuðningsefni fyrir kennara og nemendur. Góð námsgögn eru ekki aukaatriði heldur ein af grunnforsendum þess að hægt sé að halda uppi öflugu skólastarfi, styðja við læsi, dýpka skilning og efla gagnrýna hugsun. Þá skiptir einnig miklu máli að íslenskt námsefni taki mið af íslensku máli, menningu og samfélagi og endurspegli þann fjölbreytta nemendahóp sem nú sækir skóla landsins. Aukið fjármagn er nauðsynlegt ef tryggja á gæði, aðgengi og reglulega endurnýjun námsefnis. Aukið fjármagn er fjárfesting í gæðum menntunar Höfundar hvetja menntamálayfirvöld til að endurskoða þá stefnu sem ríkt hefur í námsgagnamálum, hækka styrki rausnarlega til Þróunarsjóðs námsgagna og taka upp markviss úrræði. Þar má nefna starfslaun eða tímabundin leyfi fyrir kennara og aðra sérfræðinga sem vilja semja vandað námsefni. Slíkar aðgerðir myndu ekki aðeins fjölga nýju námsefni heldur einnig bæta gæði, tryggja hraðari endurnýjun efnis og draga úr því álagi sem nú hvílir á einstökum kennurum og skólum. Nýlegar áherslur stjórnvalda um að tvöfalda fjármagn til námsgagnagerðar sýna að skilningur er til staðar á alvarleika stöðunnar, en til að raunverulegur árangur náist þarf sú uppbygging að vera bæði varanleg og nægilega myndarleg. Það er því tímabært að líta á aukið fjármagn til námsefnisgerðar sem langtímafjárfestingu í gæðum menntunar, betra starfsumhverfi kennara og sterkari stöðu íslensks menntakerfis. Höfundar eru formaður Kennarasambands Íslands og sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Heimildir Skýrsla starfshóps um bókmenningarstefnu Ingvar Sigurgeirsson og Lilja M. Jónsdóttir (2026), Starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Steinn Jóhannsson Skóla- og menntamál Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar