Golf

Ragga frá­bær í Austur­ríki og náði öðru sæti

Sindri Sverrisson skrifar
Andrea Bergsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hafa nú lokið tveimur mótum á LET Access í sumar.
Andrea Bergsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hafa nú lokið tveimur mótum á LET Access í sumar. Golf.is

Ragnhildur Kristinsdóttir byrjar golftímabilið af krafti og náði öðru sæti á móti í Austurríki í dag, á LET Access mótaröðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu.

Ragga, eins og hún er alltaf kölluð, var önnur af aðeins tveimur kylfingum sem léku samtals undir pari á mótinu sem fram fór á Sudburgenland of the Allegria Golf Resort.

Ragga lék samtals á -1 höggi, eftir að hafa leikið á 70 höggum eða pari vallarins í dag, og aðeins Hanna Tauber frá Þýskalandi lék betur en hún lék hvern hringjanna þriggja á -1 höggi, eða samtals á -3 höggum.

Ragga endaði höggi á undan þremur kylfingum, frá Frakklandi, Englandi og Þýskalandi, og langefst íslensku kylfinganna þriggja sem spiluðu á mótinu.

Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í 23. sæti á +5 höggum og Andrea Bergsdóttir í 42. sæti á +10 höggum. Þær voru ásamt Röggu jafnar í 3. sæti eftir fyrsta hring en færðust svo niður listann.

Þetta var annað mót þeirra á LET Access mótaröðinni í sumar en áður hafði Hulda Clara náð 8. sæti á Madaef Ladies Open, Andrea 29. sæti og Ragga 42. sæti.

Ragga var hársbreidd frá því að vinna sig inn á Evrópumótaröðina með árangri sínum á LET Access í fyrra og vann þá meðal annars eitt mót, fyrst Íslendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×