Noregskonungur opinberaði HM-hópinn Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2026 09:30 Haraldur fimmti Noregskonungur opinberaði HM-hópinn. Haaland er vitaskuld í hópnum. Samsett/Getty Haraldur fimmti, Noregskonungur, opinberaði landsliðshóp þjóðarinnar fyrir komandi heimsmeistaramót. Noregur er á leið á HM í fyrsta sinn í 28 ár.
Haraldur fimmti kynnti hópinn í myndbandi sem norska knattspyrnusambandið birti í gær. Hann er 89 ára og hefur setið á stóli frá árinu 1991. Haraldur fær að sjá norska liðið á heimsmeistaramóti í þriðja sinn, eftir mótin 1994 og 1998. Noregur komst einnig á HM árið 1938, þegar Haraldur var eins árs gamall. Lengi hefur verið beðið eftir því að norska liðið snúi aftur á stóra sviðið og mun stjörnum prýtt lið vera leitt af þeim Erling Haaland og Martin Ödegaard. Noregsmeistarar Viking frá Stafangri eiga einn fulltrúa í norska hópnum en Bodö/Glimt á þrjá fulltrúa. Það eru því fjórir leikmenn úr norsku úrvalsdeildinni sem fara á komandi heimsmeistaramót en hinir 22 leikmenn hópsins spila utan heimalandsins. Noregur er í áhugaverðum I-riðli mótsins ásamt Frakklandi, Senegal og Írak. Norðmenn mæta Svíum í æfingaleik 1. júní og Marokkó þann 7. júní, fyrir fyrsta leik liðsins á mótinu við Írak þann 16. júní. Landsliðshópinn má sjá að neðan. Landsliðshópur Noregs á HM 2026: Markmenn: Örjan Nyland (Sevilla), Egil Selvik (Watford), Sander Tangvik (Hamburger SV).Varnarmenn: Kristoffer Ajer (Brentford), Julian Ryerson (Borussia Dortmund), Leo Östigard (Genoa), Marcus Holmgren Pedersen (Torino), David Möller Wolfe (Wolverhampton), Fredrik Björkan (Bodö/Glimt), Torbjörn Heggem (Bologna), Sondre Langås (Derby County), Henrik Falchener (Viking).Miðjumenn: Martin Ödegaard (Arsenal), Sander Berge (Fulham), Patrick Berg (Bodö/Glimt), Kristian Thorstvedt (Sassuolo), Morten Thorsby (Cremonese), Fredrik Aursnes (Benfica), Thelo Aasgaard (Rangers).Sóknarmenn: Alexander Sörloth (Atletico Madrid), Erling Haaland (Manchester City), Jörgen Strand Larsen (Crystal Palace), Antonio Nusa (RB Leipzig), Oscar Bobb (Fulham), Jens Petter Hauge (Bodo/Glimt), Andreas Schjelderup (Benfica).
HM 2026 í fótbolta Norski boltinn Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ FH - Valur | Vængbrotnir í Krikanum Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 KA - ÍA | Tvö sem hafa valdið vonbrigðum Fram - Þór Ak. | Botnliðið í Úlfarsárdal Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Sjá meira