Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. maí 2026 07:02 Bennet Wiegert hefur vegnað vel hjá Magdeburg og ætlar að vera þar áfram. Alex Grimm/Getty Images Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, hefur blásið á alla orðróma um að hann taki við starfi Alfreðs Gíslasonar sem landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta.
Samningur hins 66 ára Alfreðs rennur út eftir HM í Þýskalandi 2027 og nú þegar eru sögusagnir á sveimi um væntanlegan eftirmann hans. Wiegert hefur helst verið nefndur í því samhengi, eftir frábæran árangur sem þjálfari Magdeburg. Magdeburg hefur meðal annars unnið Meistaradeild Evrópu og heimsmeistaramót félagsliða undir hans stjórn og er nú á hraðleið með að vinna þýsku úrvalsdeildina. Hann ætlar hins vegar ekki að sækjast eftir starfi Alfreðs. „Að mitt nafn sé nefnt er mikið hrós, fyrir fjórum eða fimm árum var það ekki þannig. Ég fel mig ekkert frá því að þetta starf var einu sinni á markmiðalistanum hjá mér en á þessum tímapunkti get ég ekki ímyndað mér að taka við því. Mér líður svo vel hjá Magdeburg, eins og heima hjá mér, og mig langar að halda áfram að vera viðloðinn hlutina hér,“ sagði Wiegert við Bild. Þeir Alfreð þekkjast líka frá tíma Wiegert sem leikmaður Gummersbach. „Ég á sérstakt samband við Alfreð og óska honum alls hins besta, hámarksárangri. Sérstaklega á HM á heimavelli, móti sem er svo mikilvægt fyrir okkur öll,“ sagði Þjóðverjinn.
Þýski handboltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið Sjá meira