Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. maí 2026 20:02 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM - Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu. Þá hefur rúmlega fjórðungur orðið fyrir einelti á vinnustað.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins. Við gerð rannsóknarinnar var rætt við konur í stéttarfélögunum um þeirra upplifun af því að vera kona á vinnustað sem var oftar en ekki mjög karllægur. Niðurstöðurnar sýna að konurnar sem starfa í karllægum greinum upplifa vinnustaðamenningu sem krefst stöðugrar baráttu og aðlögunar af þeirra hálfu. Dæmin sem viðmælendurnir taka eru að þurfa að sinna annarri og þriðju vaktinni á vinnustaðnum, á við að muna eftir afmælum samstarfsfélaga og sjá um tiltekt eða halda sameiginlegu rými snyrtilegu. „Ég laga til á verkstæðinu, og ef ég fer í frí þá kem ég bara til baka og það er sprenging sko,“ sagði ein kvennanna. Þá þarf oftar en ekki mikla fyrirhöfn til að fá viðeigandi vinnufatnað, á við skó með stáltá í réttri stærð eða galla sem eru ekki of stórir. Að auki finnst þeim þær oft mismunaðar um laun og störfin sem þær sinntu þau lægst metnu á vinnustaðnum. „Það var alveg augljóst að það var alltaf verið að reyna að bjóða mér lægra til að byrja með,“ segir önnur kvennanna. Flestar lent í eða orðið vitni að áreitni „Skýrasta birtingarmynd misréttis er áreitni og ofbeldi,“ segir í rannsókn Vörðu. Í niðurstöðum sem birtar voru á vefsíðu Rafiðnaðarsambandsins sögðust 66 prósent kvenna hafa orðið fyrir einhvers konar neikvæðum atvikum eða athugasemdum í vinnu. Þá höfðu 44 prósent orðið vitni að einelti eða kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað. Niðurstöður rannsóknarinnar sögðu að meira en helmingur kvenna í stéttarfélögunum tveimur hafði orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu. Konurnar sem rætt var við sögðu það veruleika sem þær höfðu annað hvort lent í eða orðið vitni að. Þær töldu sig samt sem áður almennt öruggar á núverandi vinnustað. Hins vegar gat það breyst í andhverfu sína, sér í lagi þegar sinna þarf stöðum utan vinnustaðarins. „Það hafa verið kúnnar sem hafa verið óviðeigandi og annað.. þú ert látin fara.. við færum þig bara annað. [...] við ætlum bara að færa þig.. ekkert gert.. ekkert sagt.. þetta er það sem er gert,“ sagði ein kvennanna í rannsókninni. Einnig var rætt töluvert um konur sem hefðu orðið fyrir kynbundu áreiti og ofbeldi og hefðu þurft að yfirgefa vinnustaði sína og hætta í faginu. „Gúdderaði það ekki að vinna með mér“ Konurnar upplifðu einnig töluverða útilokun, jafnvel á meðan þær voru enn í námi. „Svo var ég að vinna með strák sem er skiluru .. 7 árum eldri en ég og það var kallað til sálfræðings á vinnustaðnum því hann gúdderaði það ekki að vinna með mér,“ sagði einn viðmælandinn. Önnur sagðist hafa verið send til meistara sem átti að vera úrillur í skapi með það að markmiði að láta hana missa áhugann á starfinu. Það snerist hins vegar við og var sá maður sá sem stappaði í hana stálinu. Þær lýstu því einnig hvernig gert var ráð fyrir því að þær væru bara að „prófa“ greinina. „Við prófuðum einu sinni ég og félagi minn að skila sama verkefni inn. Við breyttum bara orðum sem skiptu ekki máli skiljið þið. Og ég fékk 6 og hann fékk 9,5.. og við fórum með þetta til skólastjórans og allt og hann er enn þá að kenna í dag þessi maður,“ sagði ein.
Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi Stéttarfélög Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira