Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Árni Sæberg skrifar 19. maí 2026 14:12 Skúli Tómas starfaði um tíma á Landspítalanum í Fossvogi en vinnuframlag hans var afþakkað eftir að hann var ákærður. Vísir Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fer fram á að ákæru á hendur honum, fyrir að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi, verði vísað frá dómi.
Þetta kom fram við þingfestingu ákæru á hendur Skúla Tómasi, sem fram fór klukkan 14. Hann var ekki viðstaddur þingfestinguna. Þar sem hann krefst frávísunar málsins þurfti hann ekki að mæta fyrir dóm til þess að gefa upp afstöðu sína til sakarefnis. í ákæru á hendur Skúla Tómasi segir að hann sé ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, með því að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi. Hún hafi verið lögð inn á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fimmtudaginn 1. ágúst 2019, þar sem Skúli Tómas var yfirlæknir og bar ábyrgð á læknisfræðilegri meðferð Dönu, en hann hafi sett Dönu á lífslokameðferð sama dag þrátt fyrir að hún hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm og tekið ákvörðun um og séð til að Dönu yrðu gefin slævandi lyf, það er morfín og morfínskyld lyf, Leponex (clozapine) og Dormicum (midazolam). „Leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar á sjúkrahúsinu laugardaginn 19. október 2019.“ Þá segir í ákærunni að fyrir hönd fimm uppkominna barna Dönu sé gerð miskabótakrafa á hendur Skúla Tómasi upp á fimm milljónir króna til handa hverju þeirra. Eva Hauksdóttir lögmaður er eitt barna hinnar látnu.Vísir/Vilhelm Þá krefjast þau samanlagt tæplega 900 þúsund króna í skaðabætur vegna útfararkostnaðar.
Læknamistök á HSS Dómsmál Heilbrigðismál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira