„Já, þau eru alvöru“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. maí 2026 14:31 Gugga í gúmmíbát svaraði algengum spurningum á Instagram. Instagram „Það er ekkert leyndarmál að ég er þekkt fyrir að vera með stór brjóst. Það eru nokkrar spurningar sem koma alltaf frá fólki sem eg þekki ekki og er kannski að hitta í fyrsta skipti þannig ég er að spá í að svara þeim bara hér,“ segir áhrifavaldurinn og fjölmiðlakonan Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðilinn Instagram um helgina.
Guðrún Svava skaust upp á stjörnuhimininn árið 2024 og er í dag með rúmlega 80 þúsund fylgjendur á Instagram og milljónir hafa horft á myndbönd sem hún birtir. Stígur á svið í fyrsta sinn Samhliða því að vera einn vinsælasti áhrifavaldur landsins hefur hún stýrt djammþáttum á Vísi, er með útvarpsþátt á FM957 ásamt Patreki Jaime og er að fara að stíga á svið í sumar sem leikkona í sýningunni Ástarseiði Bergamólíó kroppinbaks í Háskólabíói. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og ræddi opinskátt á dögunum um mál sem margir ókunnugir virðast hafa þörf á að ræða við hana, brjóstin hennar. „Ég er oft spurð hvort þau séu alvöru og svarið er já. Ef þú trúir mér ekki þá er það allt í lagi, þau eru alvöru.“ Þá segist Gugga ekki viss í hvaða stærð hún sé og það sé mismunandi hvaða brjóstahaldarastærð hún kaupi. „Ég er oft í of litlum brjóstahaldarastærðum og mér finnst þau lúkka minni þá. Það eru margir að segja við mig: Þú ert í vitlausri brjóstahaldarastærð. I know og ég mun líklegast ekki breyta því.“ Sækist ekki í titilinn Stærstu brjóst landsins Hún segir marga af hennar fylgjendum vera í samanburði sem hún sækist sannarlega ekki í. „Það eru mjög margir að segja við mig: Þú ert sko ekki með stærstu brjóstin á Íslandi, ég þekki stelpu sem er með stærri.“ Fólk sé sömuleiðis að senda henni skilaboð á samfélagsmiðlum af stelpum sem hún þekki ekki og segja að nú sé Gugga komin með samkeppni. „Ég hef aldrei sett þann titil á mig að ég sé með stærstu brjóst á Íslandi. Mig langar ekki í þann titil. Það eru margir með stærri brjóst en ég og mér er alveg sama. Mér finnst bara fyndið þegar fólk segir þetta við mig því þetta er ekki eitthvað sem ég pæli í. Svo eru mjög margar stelpur sem spyrja hvort þær megi snerta þau. Það er mjög skrýtið, plís ekki spyrja mig að þessu þá finnst mér þú weirdó, nema ég þekki þig.“ „Ég elska brjóstin mín“ Pabbi Guggu er kírópraktor og segist Gugga lítið sem ekkert finna fyrir bakverkjum en fær þó oft spurningar í tengslum við það. „Ég fæ mjög oft vöðvabólgu í axlirnar, það er aðallega það.“ Sömuleiðis er algengt að fólk spyrji hana út í brjóstaminnkun. „Fólk segir: Ef ég væri þú væri ég löngu búin að fara í brjóstaminnkun, þau eru alltof stór. Okei en ég elska brjóstin mín og ég held að það sjáist alveg. Þau eru alveg pirrandi stundum og föt eru ekki alltaf flott á mér, sérstaklega hversdagsföt og ég lít út fyrir að vera feitari eða whatever. Ég persónulega mun örugglega fara einn daginn en ég er ógeðslega ung, ég er 22 ára og ég veit ekki hvort ég muni eignast börn. Ég fer fram og til baka en í bili eru þau að fara að stay right here. Svo eru margir að segja að ég sé í push up brjóstahaldara. Ég keypti einu sinni push up frá Skims og ég hef aldrei notað hann. Brjóstin mín líta ógeðslega illa út í push up, ég lofa ykkur því. View this post on Instagram A post shared by Gugga í Gúmmíbát (@guggaigummibat) Að lokum segist Gugga ekki taka þessum spurningum mjög alvarlega og finnst gott að geta gert grín að sjálfri sér. „Ég reyni að taka sem minnst inn á mig og ég sýni þau mikið þannig mér finnst allt í lagi að fólk sé að spyrja út í þau. Ég gæti alveg verið í rúllukraga alla daga en ég bara vil það ekki,“ segir hún brosandi.
Samfélagsmiðlar Ástin og lífið Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira