Körfubolti

Sindri upp í úr­vals­deild í fyrsta sinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sindri er á leið upp í úrvalsdeild.
Sindri er á leið upp í úrvalsdeild. vísir / ernir

Sindri er á leið upp í úrvalsdeild karla í körfubolta í fyrsta sinn í sögu félagsins, eftir 85-80 sigur í oddaleik umspilsins gegn Breiðabliki.

Sindramenn hafa aldrei áður átt lið í efstu deild í rúmlega tveggja áratuga sögu félagsins. Þetta þýðir einnig að tvö lið af Austurlandi verða í úrvalsdeildinni á næsta ári því Höttur vann 1. deildina og fór beint upp.

Umspilsserían vannst á heimavelli en bæði Sindri og Breiðablik unnu sína heimaleiki og því þurfti oddaleik til að útkljá sigurvegara.

Breiðablik var sterkari aðilinn framan af og fór inn í hálfleik með 37-44 forystu. Blikarnir náðu síðan öðru góðu áhlaupi í þriðja leikhluta og virtust jafnvel ætla að hafa sigurinn en heimamenn börðust til baka.

Sindramenn munu styðja sitt lið í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. vísir / ernir

Aðeins einu stigi munaði milli liðanna þegar fjórði leikhlutinn hófst og hann átti sannarlega eftir að verða spennandi. Liðin skiptust ítrekað á forystunni, Breiðablik leiddi þegar þrjár mínútur voru eftir en svo var Sindri kominn með forystuna þegar tvær mínútur voru eftir.

Þá náðu Sindramenn loksins að skapa sér smá andrými og skapa tveggja sókna stigamun.

Breiðablik þurfti því að stilla upp í þriggja stiga skot þegar rúmar tuttugu sekúndur voru eftir. Vojtéch Novák klikkaði hins vegar og þá var sigurinn svo gott sem í höfn hjá Sindra.

Leikurinn kláraðist á vítalínunni og Sindri fagnaði fimm stiga sigri sem kemur liðinu upp í úrvalsdeild. Blikar þurfa að bíða eftir öðru tækifæri.

Gísli Þórarinn Hallsson og Myles Brandon McCrary voru stigahæstir hjá Sindra með 19 stig hvor í leik kvöldsins. Jason Gigliotti var hins vegar framlagshæstur með 29 punkta, þar spiluðu 14 fráköst hans stóran þátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×