Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Lovísa Arnardóttir skrifar 13. maí 2026 09:07 Ármann Þorvaldsson forstjóri segir bankann halda ótrauðan áfram á sinni vegferð. Vísir/Lýður Valberg Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir fyrsta ársfjórðung ársins 2026 hafa verið mjög góðan í rekstri bankans, vaxtatekjur hafi haldið áfram að aukast, kostnaðaraðhald að skila sér og áfram sé góður vöxtur í lykilþáttum starfseminnar. „
Skömmu eftir lok fjórðungsins var tilkynnt um að hætt hefði verið við samrunaviðræður Kviku og Arion, í kjölfar niðurstaðna forviðræðna við Samkeppniseftirlitið. Mikil og vönduð vinna var lögð í þessar viðræður enda töldu samrunaaðilar allar vísbendingar til þess að mikil verðmæti hefðu skapast fyrir hluthafa og viðskiptavini ef af samrunanum hefði orðið,“ segir Ármann í tilkynningu um uppgjör bankans á fyrsta ársfjórðungi. Þar kemur meðal annars fram að innlán frá viðskiptavinum námu 190 ma.kr., samanborið við 173 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 9,8 prósent á ársfjórðungnum. Þá voru útlán til viðskiptavina 217 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 4,3 prósent á ársfjórðungnum. Heildareignir námu 360 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025. Eigið fé samstæðunnar var 67 ma.kr., samanborið við 69 ma.kr. í lok árs 2025. „Bankinn heldur ótrauður áfram á þeirri vegferð sem mörkuð var fyrir um tveimur árum síðan, sem byggist á umtalsverðum vexti með það að markmiði að skapa verðmæti fyrir hluthafa og aðra hagaðila, en afar vel hefur gengið að ná þeim markmiðum sem við kynntum á Fjárfestadegi Kviku 2024,“ segir Ármann í tilkynningunni. Mikilvægt skref Hann segir þetta mikilvægt næsta skref í þeirri vegferð að auka skilvirkni fjármagnsskipanar bankans. Í apríl hafi þau gefið út í fyrsta sinn svokölluð AT1 skuldabréf, sem teljast til viðbótar eiginfjárþætti 1, fyrir fjárhæð sem nemur um 4 milljörðum króna. „Útgáfan fór fram í Svíþjóð og fékk afar góðar viðtökur þar sem kjörin, 4,25% yfir millibankavöxtum, voru mun hagstæðari en gert hafði verið ráð fyrir. Andvirði þessarar útgáfu, ásamt mjög sterkri eiginfjárstöðu fyrir hana, gerir stjórn bankans kleift að leggja til rúmlega 10 milljarða arðgreiðslu við hluthafafund sem boðaður hefur verið í byrjun júní. Þess utan gefur sterk eiginfjárstaða okkur mögulegt að stefna að allt að 4 milljarða endurkaupum á árinu, án þess að dregið sé úr áætlunum um lánavöxt né markmiðum um mikinn fjárhagslegan styrkleika,“ segir Ármann. Hann segir að ef þessi markmið gangi eftir muni Kvika hafa skilað rúmlega 40 milljörðum króna til hluthafa sinna á einungis tveimur árum, á sama tíma og mjög góður vöxtur hefur verið í starfsemi bankans. Hluthafafundur í júní „Þessi breyting á fjármagnsskipan bankans mun jafnframt að öðru óbreyttu hafa umtalsverð jákvæð áhrif á arðsemi eiginfjár til framtíðar. Þá verður haldið áfram að sækja fram byggt á þeim sterka grunni sem hefur verið lagður á undanförnum árum, með öflugan rekstur og skýra stefnu að leiðarljósi.“ Stjórn bankans hefur boðað til hluthafafundar þann 4. júní 2026 þar sem lögð er til sérstök arðgreiðsla að fjárhæð kr. 2,35 á hlut, eða rúmir 10 milljarðar króna. Á aðalfundi 18. mars kom fram að eiginfjárstaða félagsins yrði áfram mjög sterk og að stjórn myndi meta frekari útgreiðslur síðar á árinu. Í ljósi þess að samruni Kviku og Arion banka verður ekki að veruleika er nú til staðar aukið svigrúm til að skila fjármunum til hluthafa. Hægt er að horfa í streymi hér.
Kvika banki Uppgjör og ársreikningar Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira