Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir skrifar 13. maí 2026 06:11 Þegar ég tók skrefið og ákvað að bjóða mig fram til sveitastjórnarkosninga þá kom vissulega upp sú spurning hvað ég hefði fram að færa til samfélagsins. Við konur eigum það oft til að tala okkur niður. Hvað get ég svo sem haft til málanna að leggja? Sem hjúkrunarfræðingur hef ég alltaf vilja vera hlutlaus. Ég mismuna ekki og þarf að geta sinnt öllum jafnt. Sama hvaða kyn, þjóðerni eða þjóðfélagsstétt um ræðir. Sama hvort það sé einhver sem hefur ólíkar skoðanir en ég. En eftir vandlega ígrundun komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta er einmitt ástæða þess að ég hef svo margt fram að færa. Gildi Viðreisnar höfða mest til mín og þess vegna valdi ég Viðreisn sem minn flokk. Frelsi til orðs og athafna sem heftir ekki frelsi annarra og virðir settar reglur Jafnrétti til virkrar þátttöku og skoðana Jöfn staða kynja er sjálfstætt leiðarstef í öllu starfi Samkennd og skilningur á stöðu og kjörum annarra og nauðsyn þess að jafna tækifæri Þolgæði til þess að vinna að settum markmiðum og gefast ekki upp þó á móti blási Ef allir flokkar myndu vinna eftir þessum gildum þá væri Ísland á betri stað. Fordómar, kvenfyrirlitning og sérhagsmunir eiga að mínu mati engan stað í pólitík. Ef við ætlum að bjóða okkur fram til þess að vinna að bættu samfélagi þá eigum við að gera það af því að við viljum vel fyrir alla, ekki bara suma og alls ekki til þess að verja eigin hagsmuni umfram annarra. Listi Viðreisnar í Kópavogi er samsettur af fólki með fjölbreyttan bakgrunn. Fjölbreytt menntun, reynsla og lífstíll endurspegla breidd samfélagsins. En öll eigum við það sameiginlegt að við viljum vinna saman að því að bæta samfélagið með gildi Viðreisnar að leiðarljósi. Alla kosningabaráttuna hefur listinn unnið saman sem lið. Samheldnin og kærleikurinn verið alls ráðandi. Þannig liðsheild og samvinnu þarf til þess að reka gott bæjarfélag.Bæjarfélag sem tekur tillit til allra íbúa og setur þarfir þeirra í forgangi. Bæjarfélag þar sem er gott að alast upp og þar sem allar kynslóðir geta búið saman og notið samveru hvors annars. Til þess þarf að búa vel að barnafjölskyldum og gera þeim kleift að geta kaupa eða leigja húsnæði á viðráðanlegu verði. Við þurfum sanngjörn gjöld á þjónustu við barnafjölskyldur. Við þurfum skóla sem kemur til móts við nemendur og sérþarfir þeirra. Við þurfum samfélag með fjölbreytt úrval tómstunda sem stuðla að lýðheilsu og forvörnum. Við þurfum að veita fólki þjónustu þegar hennar er þörf, bæði ungum sem öldnum. Þess vegna þurfum við að setja X við C á laugardaginn. Höfundur er fjölskyldukona sem skipar 6. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Sjá meira