Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson skrifar 13. maí 2026 06:51 Undanfarnar vikur hafa birst fréttir af áhuga stjórnenda Icelandair á kaupum á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, maltnesku félagi með flugrekstrarleyfi. Ekki er um neinar getgátur að ræða. Icelandair hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis til kauphallar og undirritað viljayfirlýsingu (LOI) um verkefnið. Jafnframt hefur forstjóri félagsins nú kallað til fundar með flugmönnum og flugstjórum, reyndar í miðri kjaradeilu, til þess meðal annars að ræða þessi áform. Stöldrum aðeins við. Af hverju hefur stærsta flugfélag landsins áhuga á að kaupa félag á Möltu sem hvorki á né rekur eigin flugvélar og hefur ekki neina sjálfstæða starfsemi til að tala um? Samkvæmt stjórnendum Icelandair geta kaup á maltneska félaginu aukið sveigjanleika og samkeppnishæfni Icelandair, skapað hagræðingu og opnað aðgang að hagstæðara rekstrarumhverfi, meðal annars vegna loftferðasamninga og skattalegs umhverfis á Möltu. Sveigjanleiki eða félagslegt undirboð? Þetta kann að hljóma ágætlega og eðlilega en þegar málið er skoðað nánar eru sterkar vísbendingar um að meginástæða verkefnisins sé að færa hluta starfsemi Icelandair út fyrir íslenskt vinnumarkaðsumhverfi og íslenska kjarasamninga. Malta hefur árum saman verið vinsæll áfangastaður fyrir evrópsk flugfélög sem vilja nýta meiri sveigjanleika í ráðningum, lægri launakostnað, veikara samningsumhverfi stéttarfélaga þar í landi og slæm kjör launafólks. Sveigjanleikinn sem talað er um snýst því um þá hagræðingu sem felst í því komast undan íslenskum kjarasamningum og geta ráðið starfsfólk á Möltu á allt öðrum og lægri kjörum en tíðkast á Íslandi. Sveigjanleikinn felst þannig í því að flytja störf, skatta og skatttekjur úr landi. Það er félagslegt undirboð. Með þessu myndi Icelandair skipa sér í hóp lággjaldaflugfélaga sem hafa stundað í félagslegt undirboð á svæðinu. Það gefur þessum vísbendingum byr undir báða vængi að FÍA hefur óskað eftir skýrum svörum frá stjórnendum Icelandair um hvort starfsmenn félagsins hér á landi geti fengið forgang að störfum innan nýrrar starfsemi á Möltu en við því hafa stjórnendur ekki viljað verða. Því er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að verkefnið snúist að verulegu leyti um að lækka launakostnað með því að færa störf úr íslensku rekstrarumhverfi. Er þetta raunveruleg rekstrarhagkvæmni? Jafnvel þótt horft sé framhjá siðferðilegum álitaefnum, er alls óljóst hvort verkefnið standist rekstrarlega. Hugmyndin virðist vera að færa hluta Boeing-757 flotans út til Möltu og reka vélarnar þaðan með lægri launakostnaði og einfaldara rekstrarumhverfi í gegnum félagið Fly Play Europe. Vandinn er sá að það verður ekki einfalt að manna slíkan rekstur. Flugmenn sem eru með tilskilin leyfi á Boeing-757 vélum eru takmarkaður hópur og aðeins örfá flugfélög í Evrópu gera þessar vélar enn út. Þau félög greiða almennt hærri laun en Icelandair gerir á Íslandi. Því er viðbúið að erfitt verði að laða til sín reynslumikla flugmenn á lakari kjörum. Hvað þá með annan rekstrarkostnað? Það er mikil kostnaður sem fer í það að byggja upp innviði flugfélags. Verkefnið yrði gríðarlega fjármagnsfrekt til að byrja með og umsvif félagsins á svæðinu þyrftu að vera umtalsverð til lengri tíma svo að þetta myndi skila sér í hagræðingu. Saga Icelandair af sambærilegum erlendum verkefnum gefur heldur ekki sérstakt tilefni til bjartsýni. Má þar nefna fjárfestingar Icelandair í Smartlynx (LatCharter) í Lettlandi (4,2 milljarða tap), Travel-Service í Tékklandi (900 m.kr.tap) og Grænhöfðaeyjaævintýrið Cabo Verde Airlines (700-1.000 m.kr.tap). Því er mikil óvissa um hvort þetta skref myndi skila sér í aukinni rekstrarhagkvæmni fyrir félagið á næstunni. Hverjir eiga Icelandair? Sumir kunna að velta fyrir sér hvort þetta sé ekki bara einkamál fyrirtækisins, stjórnenda þess og eigenda. En Icelandair er ekki hvaða fyrirtæki sem er. Icelandair er einn stærsti vinnustaður landsins. Þúsundir Íslendinga eiga afkomu sína beint eða óbeint undir starfsemi þess og um 1% af íslensku þjóðinni starfar hjá félaginu. Því fylgja auðvitað gríðarlegar tekjur fyrir ríkissjóð sem munar um í íslensku samfélagi auk starfa fyrir þennan fjölda fólks. Að auki er félagið að stórum hluta til í eigu íslenskra lífeyrissjóða og almennings í landinu. Lífeyrissjóðir hér á landi eru einn af máttarstólpum íslensks hagkerfis. Lykilkjarni í starfsemi þeirra snýr að því að standa vörð um fjármuni almennings, ávaxta þá og greiða út þegar starfsævinni lýkur eða áföll verða. Geta lífeyrissjóðirnir sætt sig við og samþykkt í formi aðgerðarleysis að félag í þeirra eigu og einn stærsti innlendi vinnuveitandinn færi hluta starfsemi sinnar, og þar með tekjur starfsfólks, útsvar og aðrar greiðslur, úr landi? Er það í samræmi við þá samfélagslegu ábyrgð sem íslensk fyrirtæki vilja standa fyrir? Ábyrgð og samstaða Auðvitað eiga stjórnendur fyrirtækja að leita leiða til að styrkja rekstur sinn og bæta samkeppnishæfni. En slíkar leiðir hafa mörk - bæði siðferðisleg og lagaleg. Icelandair naut gríðarlegs stuðnings frá íslensku samfélagi í gegnum heimsfaraldurinn. Ríkið veitti félaginu ríkisábyrgðir og almenningur studdi við bakið á því á erfiðum tíma, það gerðu flugmenn ásamt öðru starfsfólki líka. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort stærsta flugfélag þjóðarinnar telji sig ekki bera einhverja ábyrgð gagnvart því samfélagi sem stóð með því. Heiðarlegra væri að ræða íslenskt rekstrarumhverfi opinskátt við stjórnvöld og vinnumarkaðinn í stað þess að leita leiða til að færa störf og skatttekjur úr landi undir yfirskini „sveigjanleika“. Höfundur er formaður FÍA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Icelandair Flug Kjaramál Stéttarfélög Play Gjaldþrot Play Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun