Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2026 12:02 Gangi verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans eftir gætu kjarasamingar verið í uppnámi í haust. Vísir/Vilhelm Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs muni lækka um 0,13 prósent í maí, á milli mánaða. Gangi það eftir muni verðbólga lækka úr 5,2 prósentum í 4,9. Í nýjustu Hagsjá hagfræðideildarinnar segir að mest vegi lækkun eldsneytisverðs vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkunar flugfargjalda.
Þá er því einnig spáð að verðbólgan muni mælast 4,9 prósent í ágúst og að það muni virkja forsenduákvæði í kjarasamningum vegna verðbólgu. Þá verði hægt að segja upp samningnum. Í Hagsjánni segir að samkvæmt verðmælingu hagfræðideildarinnar hafi verð á bensíni og dísilolíu lækkað um 7,1 prósent frá því í apríl. Það sé vegna tímabundinnar lækkunar á virðisaukaskatti. Mikil óvissa ríki þó um olíuverð á heimsvísu. Þá er gert ráð fyrir því að flugfargjöld til útlanda muni lækka um 7,5 prósent á milli mánaða. Það gerist alla jafna eftir páskahækkun í apríl. Fyrstu þrjá mánuði ársins voru flugfargjöld um tuttugu prósentum hærri en í fyrra. Gert er ráð fyrir svipaðri þróun á næstu mánuðum, þar sem minna framboð og hátt olíuverð muni áfram hafa áhrif. Hagfræðideildin gerir ráð fyrir því að verð á matarkörfunni svokölluðu muni hækka um 0,3 prósent í maí. Þá er því einnig spáð að íbúðamarkaður verði rólegri en gengur og gerist. Hægt hafi á hækkunum á bæði íbúða- og leiguverði. Talið er að sú þróun muni endurspeglast í reiknaðri húsaleigu.
Verðlag Landsbankinn Kjaramál Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Sjá meira