Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitarstjórnarkosningar um sölu á orkuinnviðum Birgir Olgeirsson skrifar 12. maí 2026 12:02 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, telur orkuinnviðum landsins best borgið undir eignarhaldi íslenska ríkisins. Hann óttast afleiðingarnar ef eignarhlutur ríkisins í orkuinnviðum yrðu minnkaður. aðsend Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir eðlilegt að flokkar geri kjósendum skýra grein fyrir afstöðu sinni til sölu á orkuinnviðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hann segir umræðu um einkavæðingu fyrirtækja á borð við Rarik og Landsnet snerta hagsmuni íbúa víða um land og telur mikilvægt að línurnar liggi skýrt fyrir áður en gengið verður til kosninga. „
Þetta er klárlega mál sem er ástæða til að tala um í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og eðlilegt að flokkarnir sýni með skýrum hætti á spilin hvar þeir standa í þessum efnum.“ Í gær var greint frá því að Ísland hefði sagt sig frá alþjóðlega orkusáttmálanum Energy Charter Treaty en stjórnvöld telja samninginn ganga gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum. Úrsögnin tekur gildi árið 2027. Jóhann Páll segir ákvörðunina falla að stærri stefnu um að halda yfirráðum yfir orkumálum landsins í höndum hins opinbera. „Þannig að það var bara löngu tímabært að Ísland segði sig frá þessum samningi. Og það snýst þá um að tryggja orkufullveldi Íslands, tryggja sjálfsákvörðunarrétt okkar í orkumálum.“ Muni ekki gerast á hans vakt Að hans mati verður sú umræða ekki slitin frá deilum um eignarhald á innviðum hér heima. Hann segir sér hafa brugðið þegar stjórnmálamenn hafi farið að tala fyrir sölu opinberra orkufyrirtækja og nefnir þar sérstaklega hugmyndir um Rarik og Landsnet. „Það bregður manni mjög þegar stjórnmálamenn eru að koma fram með hugmyndir um sölu á opinberum orkufyrirtækjum, til dæmis um að það verði stigin skref til einkavæðingar á Rarik og Landsneti. Það er algjörlega afleit hugmynd, það mun aldrei gerast á minni vakt.“ Í viðtalinu nefnir hann Sjálfstæðisflokkinn sérstaklega og segir flokkinn hafa kallað eftir slíkum skrefum. Að hans mati er þar ekki verið að ræða hefðbundin fyrirtæki heldur grunninnviði sem skipta heimili og atvinnulíf um allt land máli. „Það er auðvitað gæfa Íslands að við höfum byggt upp hérna orkukerfi á forsendum hins opinbera og á forsendum almannahagsmuna.“ Hann segir Rarik gegna sérstöku hlutverki í samfélaginu, enda hafi fyrirtækið verið byggt upp til að rafvæða landið og styðja búsetu og atvinnu víða um land. „Þetta er náttúrulega fyrirtæki sem er stofnað af ríkinu til þess að rafvæða byggðir landsins, til þess að tryggja góð búsetuskilyrði og samkeppnishæfni fyrir atvinnuuppbyggingu um allt land.“ Óttast afleiðingar ef dregið yrðu úr eignarhaldi ríkisins Jóhann Páll segist óttast að afleiðingarnar gætu orðið beinar fyrir almenning ef dregið yrði úr eignarhaldi ríkisins á fyrirtækinu. „Þannig að það má alveg draga þá ályktun að ef það yrði farið í einkavæðingu á Rarik, ef ríkið færi að draga úr eignarhaldi sínu á Rarik, eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafði kallað eftir, þá má bara gera ráð fyrir að orkukostnaður íbúa víða um land í mörgum af stórum sveitarfélögum í landinu myndi snarhækka eða þá að dregið yrði úr fjárfestingum og kerfið myndi drabbast niður.“ Hann segir sömu sjónarmið eiga við um Landsnet, enda sé þar um að ræða fyrirtæki sem fari með lykilinnviði raforkukerfisins. Landsnet lýsir hlutverki sínu sjálft sem rekstri flutningskerfis raforku á Íslandi. „Hitt er svo auðvitað Landsnet, sem er líka fyrirtæki í náttúrulegri einokunarstöðu þar sem svona hefðbundin markaðslögmál eiga ekkert við. Þetta er fyrirtæki sem sinnir grundvallarinnviðum raforkukerfisins og er bara algjörlega ómissandi fyrir samfélagið.“ Að hans mati eiga kjósendur því rétt á því að vita áður en kosið verður hvort flokkar vilji halda þessum innviðum í opinberri eigu eða stíga skref í átt að einkavæðingu. „Þetta er klárlega mál sem er ástæða til að tala um í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og eðlilegt að flokkarnir sýni með skýrum hætti á spilin hvar þeir standa í þessum efnum.“
Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira