Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Lovísa Arnardóttir skrifar 12. maí 2026 10:14 Helgi Bjartur er ekki sáttur við niðurstöðu héraðsdóms og hefur áfrýjað henni til Landsréttar. Vísir/Viktor Freyr Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar. Það staðfestir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Helgi Bjartur var í apríl dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að brot gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði. Níu mánuðir dómsins voru bundnir skilorði. Hann var ekki sakfelldur fyrir að nauðga drengnum heldur fyrir kynferðislega áreitni í hans garð. Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki unnt að slá því föstu að Helgi Bjartur Þorvarðarson hefði gerst sekur um háttsemi sem flokka megi sem önnur kynferðismök en samræði þegar hann braust inn til tíu ára drengs í Hafnarfirði og lagðist upp í rúm til hans. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í stað nauðgunar og var dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Foreldrar barnsins sögðu í viðtali við Ríkisútvarpið í kjölfarið að þeir teldu dóminn vera áfall. Réttarkerfið hefði brugðist og ekki tryggt öryggi barns þeirra. Þau túlki dóminn þannig að barni þeirra sé ekki trúað. Verjandi Helga, Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður, sagði eftir dóminn að fjölmiðlaumfjöllun um mál Helga hefði verið villandi. Í yfirlýsingu til Vísis sagði hann í yfirlýsingu að niðurstaðan væri sú að skjólstæðingur hans hefði verið sýknaður af öllum alvarlegustu ákæruatriðunum og sleppt úr gæsluvarðhaldi að dómnum uppkveðnum.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Tengdar fréttir Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Foreldrar tíu ára drengs í Hafnarfirði urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar héraðsdómur hafnaði kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á drengnum. Þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan maðurinn gangi laus. Þá telja þau minni hans afar valkvætt varðandi hvað gerðist örlagaríka nótt í september. Heimsókn til vændiskonu sé í fersku minni en innbrot á heimili þeirra með öllu gleymt. 11. janúar 2026 14:45 Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tíu ára dreng á heimili þess síðarnefnda í Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafði áður hafnað kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald. 14. janúar 2026 22:56 Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt Gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti Þorvarðssyni, sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði, hefur verið framlengt til 3. apríl. Aðalmeðferð í málinu hefst eftir tvær vikur. 9. mars 2026 10:34 Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira
Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Foreldrar tíu ára drengs í Hafnarfirði urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar héraðsdómur hafnaði kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á drengnum. Þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan maðurinn gangi laus. Þá telja þau minni hans afar valkvætt varðandi hvað gerðist örlagaríka nótt í september. Heimsókn til vændiskonu sé í fersku minni en innbrot á heimili þeirra með öllu gleymt. 11. janúar 2026 14:45
Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tíu ára dreng á heimili þess síðarnefnda í Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafði áður hafnað kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald. 14. janúar 2026 22:56
Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt Gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti Þorvarðssyni, sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði, hefur verið framlengt til 3. apríl. Aðalmeðferð í málinu hefst eftir tvær vikur. 9. mars 2026 10:34