„Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Siggeir Ævarsson skrifar 11. maí 2026 23:22 Emil Barja á gjarnan í miklu og virku talsambandi við dómarana Vísir/Diego Emil Barja, þjálfari Hauka, var að vonum ósáttur með frammistöðu síns liðs í kvöld en hann var þó fyrst og fremst ósáttur með frammistöðu dómaranna að þessu sinni og fannst halla töluvert á sínar konur.
Andri Már spurði Emil hvar leikurinn hefði farið frá Haukunum í kvöld en Emil vildi meina að sigur hefði í raun verið möguleiki allt til loka. Hann var nokkuð óákveðinn í svörum en dómararnir voru honum greinilega ofarlega í huga. „Ég veit það ekki. Mér fannst þetta svo sem vera leikur eiginlega allan tímann, aldrei fara einhvern veginn alveg framhjá okkur. Ég veit það ekki, mér fannst þær fá að komast mikið upp með að „hand check-a“ okkur og mjög erfitt að fara í gegnum „pick-in“, þær voru alltaf eitthvað að grípa í mjöðmina. Við verðum bara að vera sterkari. Við verðum einhvern veginn að berjast í gegnum það, það er ekkert annað sem við getum stjórnað.“ Njarðvík fékk 17 víti í fyrri hálfleik svo það lá beinast við að spyrja hvort Haukarnir hefðu einfaldlega verið að spila of grófan leik en Emil vildi meina að það hefði frekar verið Njarðvík sem var að spila gróft. „Mér fannst þær mjög grófar. Mér fannst þær koma ógeðslega fast og fá engar villur. Þannig að ég, ég veit það ekki. Jú, jú. Ætli við höfum ekki verið grófar. Við fengum villurnar.“ Emil fékk engar skýringar frá dómurunum á þeirri línu sem dæmt var eftir í kvöld. Hann hætti þó að lokum að ræða dómgæsluna og færði fókusinn yfir á sitt eigið lið og þeirra frammistöðu. „Nei, þeir eru bara dónalegir og rífast til baka ef ég ætla að fá einhverjar skýringar. Þeir koma með engar skýringar. Við verðum bara að einbeita okkur að því sem við getum stjórnað. Það eru ekki dómararnir. Við getum bara verið fastari. Við getum tekið fleiri fráköst. Við leyfðum þeim að taka 15 sóknarfráköst, við getum verið miklu sterkari þar. Leyfðum þeim svolítið að ýta okkur úr því sem við vildum gera. Við þurfum bara að vera sterkari fyrir.“ Undir lokin varð leikurinn hörkuspennandi og eins og Emil nefndi í byrjun þá hefðu bæði lið getað klárað þetta en sóknarleikurinn brást Haukunum þegar mest á reyndi. „Þetta var bara hörkuleikur og örugglega skemmtilegur leikur að horfa á. Þær eru bara með góða leikmenn líka sem geta klárað leikinn. Það sem við vorum að leita að, við frusum aðeins sóknarlega.“ Haukar eru nú sannarlega komnir með bakið upp við vegg og Andri spurði að lokum hvort að það væri raunhæft fyrir Hauka að gera hið ómögulega og vinna þrjá leiki í röð en Emil er bjartsýnn þrátt fyrir erfiða stöðu. „Það er ekkert ómögulegt. Við gerðum það í fyrra í 8-liða úrslitum gegn Grindavík og getum alveg gert það aftur.“
Bónus-deild kvenna Körfubolti Haukar Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Sjá meira