„Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. maí 2026 21:02 Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. vísir/Lýður Valberg Skipulögð glæpasamtök úti í heimi og hér á landi reyna ítrekað að klekkja á bönkum að sögn framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Gervigreindin setur sitt mark bæði á varnir og árásir.
33 ára rúmenskur karlmaður var handtekinn í Rúmeníu grunaður um að hafa nýtt sér villu í kerfi Arion banka til að millifæra á sig um 160 milljónir. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi í Búkarest en verður framseldur hingað til lands vegna gruns um fjársvik og peningaþvætti. Maðurinn keypti sér BMW X 5 jeppa fyrir hluta peninganna hér á landi. Hann flúði land með Norrænu og ferðaðist með henni í um þrjá daga áður en hann fór frá borði í Hirtshals í Danmörku. Hann ók síðan bifreiðinni þvert yfir Evrópu til síns heimalands þar sem hann var loks handtekinn af lögreglunni í Búkarest sem lagði hald á jeppann. Lögreglu hefur tekist að endurheimta um 95 prósent af því sem var svikið út og standa því um átta milljónir eftir sem maðurinn hefur líklegast eytt á flótta. Lögreglufulltrúi sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að þjófnaður framinn af tölvuþrjótum sem nýta sér kerfisgalla færist í aukana. Hún sagði um nýja tegund bankarána að ræða. Atburðarásinni svipar til máls sem kom upp í nóvember í fyrra þar sem fimm menn voru staðnir að því að hafa haft 390 milljónir af Landsbankanum. Mennirnir uppgötvuðu gallann fyrir tilviljun. Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, segir nýjan veruleika blasa við þegar það kemur að öryggismálum fjármálafyrirtækja. Um mikla fjármuni getur verið að ræða. „Í sjálfu sér höfum við alltaf áhyggjur af öllum vörnum og svikavörnum, hvort sem það eru netárásir eða aðrar árásir. Við erum með mjög öflugt teymi innan bankanna og kerfisins í heild sem er í öflugu samstarfi erlendis frá til að koma í veg fyrir svik. “ Hún tekur fram að gervigreindin setji mark sitt á öryggi fjármálafyrirtækja. „Gervigreindin er að hjálpa mjög mikið til, sérstaklega í vörnum. Þessir skipulögðu hópar og einstaklingar kunna líka að nota gervigreindina. Menn bregðast fljótt við, því þetta eru ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum. Þetta eru skipulögð glæpasamtök, oft og tíðum. Ef þú ert að tala um skipulagaða glæpahópa þá eru þeir um allan heim en þeir eru líka hér á landi, það er alveg þannig. Við þurfum að vera sífellt á varðbergi og alltaf á tánum. Þessar aðferðir breytast sífellt og tæknin verður betri og betri.“ Hún segir það skipta öllu máli að hafa hraðar hendur þegar fjársvik sem þessi koma upp. „Ef fólk verður vart við eitthvað undarlegt þarf að hafa samband um leið. Þessir aðilar skilja eftir sig rafræn spor. Það er auðvelt að rekja fjármunina en það þarf að gera það strax, bæði til að frysta þá og koma í veg fyrir að þeir séu teknir út og þeir hverfi,“ segir hún og heldur áfram: „Ég vil beina því til almennings að ef einhver fær beiðni um að vera að nota bankareikninginn til að geyma illa fengið fé, þá þarf að passa sig á því til að verða ekki hlutdeildarmaður í broti,“ segir hún og tekur fram að tölvuþrjótar noti þessa aðferð töluvert til að koma þýfi í skjól.
Fjármálafyrirtæki Netöryggi Arion banki Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira