„Gefum þeim frí – það er best fyrir alla“ Sigurður Örn Hilmarsson skrifar 12. maí 2026 06:02 Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1994 var áberandi í orðræðu frambjóðenda og stuðningsmanna R-listans að kominn væri tími á að gefa Sjálfstæðismönnum frí eftir langa valdasetu í borginni. Birt var heilsíðuauglýsing í dagblöðunum undir yfirskriftinni „Gefum þeim frí, það er best fyrir alla“. Síðan þá hafa Samfylkingin og forverar hennar verið nánast sleitulaust í meirihluta í borgarstjórn. Vísbendingar eru um að djúp gjá hafi myndast milli þess sem borgarbúar sannarlega vilja og þess sem Samfylkingin hefur upp á að bjóða. Í nýlegri könnun Gallup meðal borgarbúa sögðust 73% vilja breyttar áherslur við stjórn borgarinnar. Þetta segir meira en mörg orð. Nú rúmum þremur áratugum síðar má snúa orðum R-listafólks við. Löngu er tímabært að gefa Samfylkingunni frí og fá nýjan meirihluta við stýrið í Reykjavíkurborg. Það er sannarlega best fyrir alla. Dæmi undanfarinna ára sanna að til að svo megi verða er aðeins einn valkostur, Sjálfstæðisflokkurinn. Láttu atkvæðið telja Frá árinu 2010 hefur Samfylkingin haft átta samstarfsflokka í meirihluta borgarstjórnar. Þrír þeirra bjóða ekki lengur fram undir eigin merkjum. Meirihlutinn hefur fallið ítrekað en ávallt hefur nýr flokkur fengist undir vagninn. Vörumst varadekkin sagði einhver. Í framboði til borgarstjórnarkosninga eru fimm flokkar sem áður hafa hlaupið undir bagga með meirihluta Samfylkingarinnar. Framboðslisti Samfylkingarinnar er sömuleiðis einungis gamalt vín á nýjum belgjum, skipaður fólki sem haldið hefur um stjórnartaumana í borginni undanfarinn áratug. Einungis einn flokkur sem nú er í borgarstjórn hefur ávallt staðið utan meirihluta á valdatíð Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn. Það er kominn tími á breytingar og það strax! Til að svo megi verða þarf að tryggja Sjálfstæðisflokknum ótvírætt umboð til að leiða nýjan meirihluta í Reykjavík. Greiddu atkvæði með breytingum. Láttu atkvæðið telja og kjóstu Sjálfstæðisflokkinn 16. maí. Höfundur er hæstaréttarlögmaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins Höfundur er hæstaréttarlögmaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Örn Hilmarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1994 var áberandi í orðræðu frambjóðenda og stuðningsmanna R-listans að kominn væri tími á að gefa Sjálfstæðismönnum frí eftir langa valdasetu í borginni. Birt var heilsíðuauglýsing í dagblöðunum undir yfirskriftinni „Gefum þeim frí, það er best fyrir alla“. Síðan þá hafa Samfylkingin og forverar hennar verið nánast sleitulaust í meirihluta í borgarstjórn. Vísbendingar eru um að djúp gjá hafi myndast milli þess sem borgarbúar sannarlega vilja og þess sem Samfylkingin hefur upp á að bjóða. Í nýlegri könnun Gallup meðal borgarbúa sögðust 73% vilja breyttar áherslur við stjórn borgarinnar. Þetta segir meira en mörg orð. Nú rúmum þremur áratugum síðar má snúa orðum R-listafólks við. Löngu er tímabært að gefa Samfylkingunni frí og fá nýjan meirihluta við stýrið í Reykjavíkurborg. Það er sannarlega best fyrir alla. Dæmi undanfarinna ára sanna að til að svo megi verða er aðeins einn valkostur, Sjálfstæðisflokkurinn. Láttu atkvæðið telja Frá árinu 2010 hefur Samfylkingin haft átta samstarfsflokka í meirihluta borgarstjórnar. Þrír þeirra bjóða ekki lengur fram undir eigin merkjum. Meirihlutinn hefur fallið ítrekað en ávallt hefur nýr flokkur fengist undir vagninn. Vörumst varadekkin sagði einhver. Í framboði til borgarstjórnarkosninga eru fimm flokkar sem áður hafa hlaupið undir bagga með meirihluta Samfylkingarinnar. Framboðslisti Samfylkingarinnar er sömuleiðis einungis gamalt vín á nýjum belgjum, skipaður fólki sem haldið hefur um stjórnartaumana í borginni undanfarinn áratug. Einungis einn flokkur sem nú er í borgarstjórn hefur ávallt staðið utan meirihluta á valdatíð Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn. Það er kominn tími á breytingar og það strax! Til að svo megi verða þarf að tryggja Sjálfstæðisflokknum ótvírætt umboð til að leiða nýjan meirihluta í Reykjavík. Greiddu atkvæði með breytingum. Láttu atkvæðið telja og kjóstu Sjálfstæðisflokkinn 16. maí. Höfundur er hæstaréttarlögmaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins Höfundur er hæstaréttarlögmaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar