Hulda í hópi fjörutíu bestu undir fertugu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 11. maí 2026 17:01 Hulda Jónsdóttir hlaut eftirsótta viðurkenningu fyrir arkitekta og hönnuði. Karítas „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig persónulega. Það liggur mikil vinna og seigla á bak við svona ferðalag og í jafn harðri samkeppni og þessum bransa gefur svona viðurkenning manni sannarlega byr undir vængina til að halda áfram og treysta á eigin sýn og innsæi,“ segir arkitektinn Hulda Jónsdóttir, stofnandi og eigandi HJARK arkitekta. Hún verið valin í „Europe 40 Under 40“ sem eru virt verðlaun í heimi arkitekta og hönnuða. „
Ég er, eftir því sem ég best veit, fyrsta manneskjan frá Íslandi til að hljóta þessa viðurkenningu,“ segir Hulda í samtali við blaðamann en hún er auðvitað í skýjunum með þessa viðurkenningu. „Ég er enn ung í faginu og HJARK hefur verið starfandi í tiltölulega stuttan tíma, þannig að þessi viðurkenning er stór hvatning til áframhaldandi uppbyggingar og metnaðar.“ Verðlaunin eru veitt af The European Centre for Architecture Art Design and Urban Studies og Chicago Athenaeum: Museum of Architecture and Design. Er um að ræða stór alþjóða verðlaun sem eru gefin út til fjörutíu aðila á heimsvísu ár hvert, annað hvort ár fer til Evrópu og hitt til Ameríku. Þessi viðurkenningin er ætluð efnilegum arkitektum og hönnuðum í Evrópu undir fertugu. Hulda Jóns stofnaði HJARK árið 2020.Karítas Hulda starfar sem arkitekt og stofnandi HJARK arkitektastofu, sem hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum hér á landi, allt frá high-end einkaframkvæmdum yfir í leikskóla, hjúkrunarheimili, samfélagsverkefni og stór skipulagsverkefni, ávallt með áherslu á sjálfbærni, vandaða hönnun og mannlegan skala. HJARK hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga á þeim stutta tíma sem stofan hefur verið starfandi. Meðal annars hefur stofan verið tilnefnd til Mies van der Rohe verðlaunanna 2026 og hlotið verðlaun á World Architecture Festival þar sem verkefni stofunnar sigraði sinn flokk, auk fleiri alþjóðlegra viðurkenninga undanfarin ár. Hulda lærði og starfaði erlendis í tólf ár, meðal annars í Frakklandi, á Spáni, í Englandi og Danmörku. „Svo flutti aftur til Íslands og stofnaði HJARK árið 2020. Þetta er risa skref fyrir mig og að ég held arkitekta heiminn á Íslandi að hafa Íslending á þessum lista. Framtíðin er spennandi og verkefnin framundan fjölbreytt og metnaðarfull.“
Arkitektúr Menning Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Mest lesið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Fleiri fréttir Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Sjá meira