Fötlunargleraugun upp! Ester Bíbí Ásgeirsdóttir og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir skrifa 11. maí 2026 12:12 Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.Alltof oft eru réttindi og þátttaka fatlaðs fólks bundin við velferðarþjónustu og við hugsum ekki um fatlað fólk sem þátttakendur í samfélaginu; á vinnumarkaði, sem listafólk, sem foreldra, sem neytendur og dýrmætan þátt í fjölbreytileika samfélagsins. En ef við hugsum ekki um fatlað fólk byggjum við ósjálfrátt hindranir sem koma í veg fyrir að fólk geti verið með. Þannig verður til hingrás af aðskilnaði og ósýnileika sem festir fordóma og útskúfun í sessi. Þess vegna verðum við að keyra upp úr þeim hjólförum að hugsa bara um fatlað fólk þegar við erum að hugsa um velferð og þjónustu fyrir fatlað fólk og setja upp fötlunargleraugun í hverju einasta máli. Hvernig við byggjum upp menningar- og íþróttastarf, hvernig við skipuleggjum útivistarsvæði, hvernig við hönnum strætóbiðskýli, hvernig þróum vefi og öpp og svo mætti áfram telja.Vinstrið í Hafnarfirði heitir því að vinna að aðgerðaráætlun um réttindi fatlaðs fólks með samning Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og að verkferlar verði mótaðir sem tryggja að fötlunargleraugun verði sett upp þegar ákvarðanir eru teknar. Hver einasta strætóstoppistöð, hver einsta ákvörðun í stafrænni þróun, hver einasti leikvöllur, hver einasta hjáleið við framkvæmdir, hvert einasta útivistarsvæði, verður skoðuð með fötlunargleraugun á nefinu. Ef það hindrar samfélagsþátttöku fatlaðs fólks þarf að fara aftur að teikniborðinu! Ester Bíbí Ásgeirsdóttir er oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði og Inga Björk skipar 10. sæti listans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.Alltof oft eru réttindi og þátttaka fatlaðs fólks bundin við velferðarþjónustu og við hugsum ekki um fatlað fólk sem þátttakendur í samfélaginu; á vinnumarkaði, sem listafólk, sem foreldra, sem neytendur og dýrmætan þátt í fjölbreytileika samfélagsins. En ef við hugsum ekki um fatlað fólk byggjum við ósjálfrátt hindranir sem koma í veg fyrir að fólk geti verið með. Þannig verður til hingrás af aðskilnaði og ósýnileika sem festir fordóma og útskúfun í sessi. Þess vegna verðum við að keyra upp úr þeim hjólförum að hugsa bara um fatlað fólk þegar við erum að hugsa um velferð og þjónustu fyrir fatlað fólk og setja upp fötlunargleraugun í hverju einasta máli. Hvernig við byggjum upp menningar- og íþróttastarf, hvernig við skipuleggjum útivistarsvæði, hvernig við hönnum strætóbiðskýli, hvernig þróum vefi og öpp og svo mætti áfram telja.Vinstrið í Hafnarfirði heitir því að vinna að aðgerðaráætlun um réttindi fatlaðs fólks með samning Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og að verkferlar verði mótaðir sem tryggja að fötlunargleraugun verði sett upp þegar ákvarðanir eru teknar. Hver einasta strætóstoppistöð, hver einsta ákvörðun í stafrænni þróun, hver einasti leikvöllur, hver einasta hjáleið við framkvæmdir, hvert einasta útivistarsvæði, verður skoðuð með fötlunargleraugun á nefinu. Ef það hindrar samfélagsþátttöku fatlaðs fólks þarf að fara aftur að teikniborðinu! Ester Bíbí Ásgeirsdóttir er oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði og Inga Björk skipar 10. sæti listans.
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar