Vilja fjölga hólmum í Reykjavíkurtjörn og friðlýsa fjöru við Skerjafjörð og Ægisíðu Lovísa Arnardóttir skrifar 11. maí 2026 11:20 Í stefnunni er lagt til að hólmum í Reykjavíkurtjörn verði fjölgað. Í dag eru tveir hólmar á tjörninni. Vísir/Arnar Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika.
Í stefnunni segir til dæmis að gera eigi vöktunaráætlun á lífríki borgarinnar og að götutré í borgarlandinu verði skráð í gagnagrunn. Þá er stefnt að því að fjara við Ægisíðu og Skerjafjörð verði friðlýst fyrir árið 2030 og að grænum tengingum á milli svæða verði gert hærra undir höfði við skipulagsgerð. Í stefnunni er einnig lagt til að votlendisaðgerðir í Úlfarsárdal verði endurmetnar og að strandsvæði Reykjavíkur verði kortlögð. Þá er lagt til að gömul sláttusvæði verði endurhönnuð og gróðursett í þau eins og á við. Eiga að sjá þrjú tré og ekki labba lengur en 300 metra á grænt svæði Í stefnunni er gert ráð fyrir að 3-30-300 reglan verði staðfærð fyrir íslenskar aðstæður og skilgreind verði markmið út frá henni fyrir Reykjavík. Reglan snýst um að íbúar sjái allir í það minnsta þrjú tré út frá glugga sínum, að þeir búi í hverfi þar sem sé í það minnsta 30 prósent laufþekja og að ekki sé lengra en 300 metrar í næsta græna svæði. Í stefnunni er einnig gert ráð fyrir að notaður verði fjölbreyttur gróður og að hólmum í Reykjavíkurtjörn verði fjölgað fyrir fuglalíf. Lagt er til að friðlýsingarferli fjöru við Skerjafjörð og Ægissíðu verði lokið. Vísir/Vilhelm Þá er gert ráð fyrir að að lágmarki verði eitt tré í almenningsrýmum Reykjavíkur fyrir hverja sex íbúa og að laufþekja verði að lágmarki 10 prósent í hverju hverfi Reykjavíkur. Þá er í stefnunni gert ráð fyrir að græn svæði minnki ekki að flatarmáli innan þéttbýlis og að tryggt verði við endurgerð gatna að þær fái grænna yfirbragð. Þá er í stefnunni lagt til að gerð verði greining á aðgerðum til að koma í veg fyrir efnamengun í Grafarvogi og að áfram verði unnið að bættum vatnsgæðum Tjarnarinnar. Einnig er lagt til að framandi ágengar tegundir í borgarlandi verði skilgreindar og að gripið verði til aðgerða. Einnig er lagt til að tröllahvönn verði kortlögð. Þá er lagt til að stofnstærðarmat fyrir kanínur verði uppfært og að árlega verði gróðursett tíu þúsund tré. Öll börn fái náttúrukennslu Þá er í stefnunni lagt til að fræðsla um líffræðilegan fjölbreytileika fari fram með víðtækum hætti og að öll börn undir fimmtán ára aldri fái náttúrukennslu í það minnsta einu sinni á ári. Borgarráð samþykkti nýja aðgerðaáætlun Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 í síðustu viku sem ber heitið Náttúrulega Reykjavík! Í henni eru 80 fjölbreyttar aðgerðir. Í tilkynningu kemur fram að áætlunin byggi á gildandi stefnu Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni frá árinu 2016. 60 prósent hlynnt viljandi villt Við gerð áætlunarinnar var boðað til vinnufundar með hagaðilum, fagstofnunum og félagasamtökum. Einnig voru drög að aðgerðaáætluninni sett í samráðsgátt Reykjavíkurborgar þar sem íbúum, hagaðilum og öllum áhugasömum gafst tækifæri til að kynna sér málið og koma með athugasemdir. Í tilkynningu kemur sömuleiðis fram að afstaða íbúa hafi verið könnuð til valinna verkefna og að sem dæmi séu 60 prósent íbúa jákvæð fyrir verkefninu Viljandi villt. Þá var aðgengi íbúa að grænum svæðum kannað en rúmlega 80 prósent þeirra telja sig eiga auðvelt með að komast á skipulögð græn svæði.
Reykjavík Umhverfismál Loftslagsmál Garðyrkja Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira