Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar 10. maí 2026 07:03 Á Íslandi eru sund og íþróttir skyldufög fyrir börn á grunnskólaaldri. Flest horfa á það sem sjálfsagðan rétt barna að fá að læra sundtökin og hreyfa sig með öðrum börnum. Því miður er varla hægt að kalla það rétt allra barna þar sem aðstaðan í sundlaugum og íþróttamiðstöðvum landsins getur útilokað ákveðinn hóp barna í samfélaginu frá því tækifæri að stunda skólaíþróttir og sund. Fyrir flest börn er það að ganga inn í búningsklefa, skipta um föt og halda áfram inn í daginn eðlilegur hlutur. En fyrir önnur er það langt frá því að vera auðvelt mál. Fyrir þau getur búningsklefinn staðið fyrir þeim eins og stór og þung þrekraun. Skrímsli sem vekur upp kvíða, óöryggi og þá tilfinningu að tilheyra ekki. Barn sem er kynsegin, trans eða intersex getur upplifað það sem óbærilegt að þurfa ítrekað að velja á milli tveggja kynjaskiptra klefa sem hvorugur endurspeglar þeirra veruleika. Önnur börn eru hrædd við stríðni eða niðrandi orðræðu inni í búningsklefum vegna líkama síns eða annarra ástæðna og treysta sér ekki inn í þá. Á meðan sum börn eru með fötlun eða þurfa meira næði og aðstoð en fyrirfinnst í almennum klefum. Ástæðurnar eru ólíkar, en afleiðingarnar eru yfirleitt alltaf þær sömu: barnið dettur út úr skólasundi og íþróttaiðkun. Ekki vegna leti barnsins eða áhugaleysis á íþróttum og sundi, heldur vegna þess að aðstaða íþróttamiðstöðva og sundlauga er ekki reiðubúin til þess að koma til móts við þeirra þarfir. Samkvæmt 2. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga öll börn rétt á jafnri meðferð án mismununar. Þá vakna hjá mér nokkrar spurningar: ríkir raunverulegur jöfnuður milli íslenskra barna í þessu tiltekna máli? Er jafnræði tryggt þegar sum börn geta tekið þátt í skólasundi án hindrana en önnur eru send í göngutúr eða látin bíða á bakkanum á meðan bekkurinn fer í laugina? Á það að skipta máli í hvaða sveitarfélagi barn býr, hvort það fái tækifæri á að stunda sund og íþróttir í öruggu umhverfi? Sum sveitarfélög eru með þessa hluti til fyrirmyndar og má þar til dæmis nefna Reykjavíkurborg. Reykjavíkurborg býður upp á kynhlutlausa snyrti og búningsaðstöðu (3.klefann) í öllum sundlaugum borgarinnar, samkvæmt þeim gögnum sem borgin hefur gefið út. Það gerir það að verkum að börn sem alast upp á því landsvæði fá tækifæri til að taka þátt í sundi og íþróttum óhindrað þar sem þau sem ekki treysta sér í kynjaskipta almenningsklefa geta nýtt sér 3. klefann, á meðan önnur börn sem eru ekki jafn ,,heppin” með búsetu fá ekki sömu tækifæri. Ný reglugerð um hollustuhætti nr. 903/2024, sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gaf út árið 2024, endurspeglar að íslensk stjórnvöld eru farin að horfa meira til fjölbreyttra þarfa fólks. Þar kemur fram að æskilegt sé að snyrtingar séu aðstöðumerktar fremur en kynjamerktar og að þar sem aðskildar snyrtingar fyrir karla og konur eru til staðar skuli einnig vera kynhlutlaus snyrting. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um að í nýjum íþróttamannvirkjum, eða þar sem farið er í meiriháttar endurbætur, skuli vera sérklefi og að að minnsta kosti einn þeirra uppfylli kröfur algildrar hönnunar. Algild hönnun gengur út á að samfélagið og umhverfið sé hannað fyrir fjölbreyttan hóp fólks með ólíkar þarfir, getu og aðstæður. Markmiðið er að auka þátttöku, aðgengi og mannlega reisn allra. Reglugerðin leggur þó ekki þá skyldu á eldri mannvirki að ráðast tafarlaust í breytingar. Þess vegna getur staða barna verið mjög mismunandi eftir sveitarfélögum þar sem það er engin almennileg pressa á þeim að gera betur. Sum sveitarfélög hafa þegar brugðist við - en alls ekki öll. Við eigum ekki að sætta okkur við að þátttaka barna í skólaíþróttum og sundi velti á því hvort þau „passi“ inn í ákveðinn klefa. Börn eiga ekki að þurfa að velja á milli eigin öryggis og þess að fá að vera hluti af hópnum. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga vil ég því skora á sveitarfélög, skólayfirvöld og rekstraraðila sundlauga og íþróttamannvirkja að hugsa í lausnum. Ekkert barn ætti að þurfa að bíða í áratugi eftir því að nýtt húsnæði verði byggt eða stórframkvæmdum hrint af stað. Það ætti ekki að vera svo flókið að finna litla aðstöðu í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum sem hægt væri að breyta í kynhlutlausa snyrti og búningsaðstöðu. Þetta er ekki og þarf ekki að vera neitt stórt eða flókið málið, þetta er einfaldlega bara eitt skref í átt að samfélagi fyrir öll börn - ekki bara útvöld. Og ekki bara fyrir þau sem eru svo heppin að búa í ,,rétta” sveitarfélaginu. Höfundur er menntaskólanemi og fyrrum fulltrúi Ráðgjafarhóps Umboðsmanns barna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar