Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar 14. júní 2026 15:29 Eitt af fyrstu verkum nýs meirihluta í borginni var rifting á samningi sem fyrri meirihluti hafði gert við hjólhýsabúa um leigu á landi úti á Gufunesi, eftir að hafa reynt að finna þeim pláss úti á Skerjafirði en hætt við út af mikilli andstöðu íbúa á því svæði. Hjólahýsabúar eru fólk sem hafðist einu sinni til í Laugardalnum þangað til því var úthýst þaðan árið 2023 en þá fundu þáverandi borgaryfirvöld þeim tímabundinn samastað uppi á Sævarhöfða. Þá var Einar nokkur Þorsteinsson borgarstjóri en hann lét strax þá í ljós andstöðu sína við að koma til móts við þetta fólk sérstaklega – benti hreinlega á að til staðar væru bæði tjaldsvæði á almennum markaði og félagsleg úrræði hjá borginni sem þetta fólk gæti nýtt sér. Nú dúkkar hann upp í hlutverki formanns borgarráðs þar sem hann lýsir sömu afstöðu fyrir hönd meirihlutans og svo virðist sem ætlunin sé að hann sjái alfarið um að tjá sig um þetta málefni. Það er miður, því honum ferst það verkefni ekki beint hönduglega. Eitt er að vilja ekki koma upp hjólhýsabyggð, sem verður að teljast alveg skiljanleg og málefnaleg afstaða, en annað er að sýna þessu fólki jafn grímulausa andúð og Einar gerir. Halda mætti að um væri að ræða eitt stærsta hneyklismál Íslandssögunnar miðað við hvernig hann talar; að gamli ruslahaugurinn sem til stóð að koma þessu fólki fyrir á væri eitt verðmætasta byggingarland borgarinnar sem verið sé að ræna undan henni með bíræfnum hætti. Gengur formaður borgarráðs svo langt að vaða persónulega í Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, sem hefur haft sig frammi við að gagnrýna áhugaleysi nýja meirihlutans á samtali – vænir hana meðal annars um spillingu af því hún hefur verið varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og þess vegna hafi það verið flokkspólitísk ákvörðun að semja við hjólhýsabúa. Um þessa alvarlegu ásökun má hafa mörg orð – benda til dæmis á að það voru fjórir flokkar í fráfarandi meirihluta, eða þá á það að Geirdís Hanna bauð sig áfram fram fyrir Sósíalistaflokkinn núna í síðustu kosningum meðan fráfarandi oddviti flokksins bauð sig fram fyrir annað framboð – en fyrst og fremst er það Einar sjálfur sem er hér að opinbera það viðhorf að fólk fyrirgeri í hans huga virðingu og réttindum með því að bjóða sig fram fyrir ranga flokka. Hann hefur ekki áhuga á samtali af því að Geirdís Hanna býður sig fram fyrir Sósíalistaflokkinn. Það er það sem hann er að segja. Almennt virðist sem hann hafi ekki áhuga á samtali af því þetta er hreinlega bara ekki rétt fólk í hans huga. Ekki nógu fínt eða áhugavert fyrir hans smekk. Þetta hlýtur að teljast einhvers konar met í valdhroka án atrennu, að vera strax kominn í þær stellingar tæpum mánuði eftir kosningar að kýla svona rækilega niður fyrir sig og hafa bersýnilega ákveðna unun af því. Svo það áréttist enn og aftur þá snýst þetta ekkert endilega um endalegar efnislegar ákvarðanir og hugmyndafræðilega afstöðu heldur um viðhorf og framkomu. Um hverjir eru virtir viðlits og hverjir ekki. Hér er alls ekki of seint að skipta um gír og afstaða annarra fulltrúa meirihlutans liggur ekki fyrir. Lýst er eftir fulltrúa sem þorir að stíga fram og hreinlega biðja þetta ágæta fólk afsökunar og halda áfram samtalinu sem fráfarandi meirihluti hóf. Viðkomandi fulltrúi getur auðvitað algjörlega ráðið forsendum þess samtals út frá sinni eigin sannfæringu - en virðing og kurteisi ættu að vera óumsemjanleg gildi þvert á flokkapólitík. Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldór Auðar Svansson Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar