Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Freyja Þórisdóttir skrifar 9. maí 2026 14:46 Halldór segist aðallega sáttur að hafa sannað fyrir vinum sínum að hann gæti labbað heim úr vinnuni. Þeir hafi haft litla sem enga trú á honum. Aðsend Halldór Áskell Stefánsson gerði sér lítið fyrir og labbaði heim úr vinnunni í gær. Það væri líklega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Halldór vinnur í Reykjavík en býr á Selfossi. Ferðalagið tók rúmar þrettán klukkustundir, reyndist mikil áskorun og á tímabili þurfti hann að minna sig á að setja annan fótinn fram fyrir hinn.
Þetta er í þriðja skipti sem Halldór fer labbandi, hjólandi eða hlaupandi á milli heimilis og vinnu. Aðspurður hvað kom til segist hann hafa fengið hugmyndina út frá átaki í vinnunni. „Ég hjólaði einu sinni í vinnuna af því að það var eitthvað „hjólað í vinnuna“ átak og mér fannst fyndið að hjóla frá Selfossi,“ segir Halldór sem vinnur hjá Opnum kerfum. Halldór segist svo hafa ákveðið að blanda því saman við annað átak þar sem tæknifyrirtækið HP var að planta trjám fyrir hvert skráð skref starfsmanna. Síðast þegar Halldór gerði sig líklegan til að labba á milli Selfoss og Reykjavíkur villtist hann eftir að hann var komin yfir Kambana.Aðsend „Þannig að ég ákvað að labba í vinnuna í fyrra en þá mistókst það. Ég tók ranga beygju og þetta var einhver vitleysa bara,“ segir Halldór. Eiginkona hans hafði nefnt það við hann að hann myndi villast. „Ég sagði að hún væri bara vitleysingur, hver myndi eiginlega villast á heiðinni? En mér tókst að villast,“ segir Halldór. Karlotta ofurhlaupari innblástur Hann hafi ákveðið að reyna aftur núna en fara í hina áttina, úr vinnunni og heim á Selfoss. Hann hefur undanfarið fylgst með ofurhlauparanum og Íslandsmethafanum Karlottu Ósk Óskarsdóttur við keppni í tíu daga hlaupi í Búlgaríu. „Það er undirliggjandi ótrúlega mikill áhugi á því að Karlotta sé að taka einhverja fimm hundruð kílómetra á nokkrum dögum. Ég hugsa bara að ég sé einhver meðaldúddi sem stend upp úr sófanum og ég, fjandinn hafi það, hlýt að geta labbað fimmtíu – sextíu kílómetra,“ segir Halldór og bætir við að það sé miklu erfiðara en honum hafi órað fyrir. „Það voru tímar þarna þar sem ég setti hausinn bara fyrir mig og þurfti að einbeita mér að því að setja einn fótinn fram fyrir hinn,“ segir Halldór. Vinir hans komu honum á óvart og fylgdu honum síðustu klukkustundirnar. Halldór lagði af stað klukkan eitt eftir hádegi og var að stefna á að ná einum „miðnæturbjór“ á Risinu sem er bar á Selfossi. Allt tók lengri tíma en hann bjóst við. Hann segir erfiðasta kaflann hafa verið þegar hann hafði hlaupið fram hjá Hvergerði. Þrátt fyrir að Halldór hafi ekki náð tilsettu markmiði, miðnæturbjór á Risinu, þá fengu þeir félagarnir sér einn kaldann að lokinni göngu.Aðsend „Ég var alveg sprunginn og veit eiginlega ekki hvernig þetta hefði endað ef þeir hefðu ekki birst þarna,“ segir Halldór en vinir hans biðu færis við gróðurhúsin í Hveragerði og héldu honum félagsskap ásamt því að dreifa huganum frá eymslunum. Vinirnir eins og labbandi hlaðvarp Halldór hafði ákveðið fyrir gönguna að hlusta ekki á neitt, hvorki tónlist né hlaðvörp, en seinni helmingur göngunnar hafi einkennst af því að hann gat ekki hugsað um annað en hversu mikið sig verkjaði. Þá var innleggið í öðrum skónum að angra hann og eftir um 15 kílómetra tók hann það úr. „Það var alltaf eitthvað að trufla mig og svo reif ég innleggið af eftir fimmtán kílómetra og sá þá að það var grjót þarna undir. Þannig að þá er önnur löppin í rugli og maður labbar skakkt og þá fer mjöðmin,“ segir Halldór. Það hafi hjálpað að hlusta á vinina ræða sín á milli um allt milli himins og jarðar. „Þeir voru smá eins og hlaðvarp bara, þrömmuðu áfram og ræddu sín á milli um Evrópusambandið og húsnæðismarkaðinn og allt. Svo var ég þarna blótandi bara svona fimm metrum aftar,“ segir Halldór. Hann birti reglulega færslur á Instagram þar sem hann tók eins konar „stöðutékk“ og meðal annars setti hann inn myndband þegar klukkan var að ganga miðnætti. Hægt er að sjá færslurnar sem Halldór birti á Instagram en þar heitir hann @rasskell og er þær að finna í „hightlight“ sem hann titlaði Gangan heim.Aðsend „Þessir ágætu menn halda pace-inu vel en ég ætla ekki að ljúga, mér er illt og ég er þreyttur,“ sagði hann og velti því fyrir sér „af hverju bý ég svona langt í burtu?“. Tíu prósent vegalengdarinnar Sjö mínútur í eitt var hann kominn að vegskiltinu sem á stendur „Selfoss“ og stuttu síðar voru þeir félagarnir sestir í bjór. Það hafi verið virkilega freistandi að hringja eftir leigubíl síðustu tvo kílómetrana, frá barnum og heim, en það gerði hann ekki. Alls tók ferðin þrettán klukkutíma og ellefu mínútur, með bjórstoppinu, en Halldór segir að þetta undirstriki hversu ótrúlegt þrekvirki Karlotta sé að vinna úti í Búlgaríu. Hann hafi ekki farið nema um það bil tíu prósent af vegalengdinni sem hún hefur hlaupið síðustu daga. „Ég hef aldrei hreyft mig eins lítið og frá áramótum, hef hvorki mætt í ræktina né farið í reglulega göngutúra. Þannig að þetta sýnir smá að með því að gera ekki neitt getur þú gert líkamann nánast ófæran um að gera eitthvað. Rétt eins og að með æfingu getur þú gert eitthvað ótrúlegt eins og Karlotta er að gera.“
Heilsa Árborg Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira