Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Freyja Þórisdóttir skrifar 9. maí 2026 08:52 Sjúkraliðar fylgja sjúklingi, annar frá hægri, sem var fluttur af skemmtiferðaskipinu MV Hondius vegna gruns um hantaveirusýkingu, í sjúkrabíl eftir flug til Schiphol-flugvallar í Amsterdam í Hollandi, miðvikudaginn 6. maí 2026. AP Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða.
Þetta segir í fréttum færeyska ríkisfjölmiðilsins KVF en þar er einnig greint frá því að maðurinn, sem heitir Jakob Larsen, sé ekki smitaður af lífshættulega afbrigðinu sem hefur verið áberandi í fréttum undanfarið. Hann greindist með aðra, mildari útgáfu veirunnar, sem nefnist Puumala. Jakob var um borð í Norrænu á leið til Færeyja þann 19. apríl þegar honum sló skyndilega niður og ástand hans versnaði hratt. Hann var þá lagður inn á Landssjúkrahúsið í Færeyjum en þaðan fluttur með sjúkraflugi á háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum, þar sem staðfest var að um hantaveiru væri að ræða. „Daninn, sem var lagður inn á sjúkrahús í Færeyjum, var ekki veikur af lífshættulegu hantaveirunni sem við heyrum um í alþjóðlegum fjölmiðlum, heldur af mun mildari útgáfu af hantaveiru, Puumala, sem smitast ekki milli fólks,“ segir Shahin Gaini, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Færeyja. Engin merki um upphaf heimfaraldurs Embætti landlæknis hér á Íslandi sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kemur að „allur almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur“ heldur sé það einungis farþega, áhafnar og náinna tengiliða skemmtiferðaskipsins MV Hondius að fylgja leiðbeiningum. Þar segir einnig að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafi lýst því yfir að engin merki séu um að þetta sé upphaf heimsfaraldurs. „Það er verið að beita vel þekktum sóttvarnaaðgerðum, þar á meðal smitrakningu, einangrun, vöktun og almennum sóttvörnum eins og þrifum, sem geta rofið smitkeðjur og komið í veg fyrir frekari dreifingu,“ segir í tilkynningunni frá landlækni. Stefnir til Kanaríeyja Áætlað er að hollenska skipið verði fyrir utan strendur spænsku eyjunnar Tenerife snemma í fyrramálið, sunnudaginn 10. maí, en farþegarnir verða fluttir á „algjörlega einangrað, afgirt svæði“, sagði Virginia Barcones, yfirmaður neyðarþjónustu Spánar. Þetta kemur fram í frétt sem birt var á katarska fjölmiðlinum Al Jazeera í morgun. Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður WHO, verður á eyjunni til að aðstoða við að samræma brottflutning farþega, samkvæmt heimildum spænska ráðuneytisins. Þrátt fyrir að þrír hafi látist frá því að faraldurinn braust út og fimm farþegar sem fóru frá borði séu staðfest smitaðir af hantaveiru, sagði útgerðarfyrirtækið Oceanwide Expeditions á föstudag að enginn um borð í skipinu væri með einkenni hugsanlegrar sýkingar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur sem fyrr segir hættuna fyrir almenning vegna faraldursins litla og hefur Christian Lindmeier, talsmaður WHO, sagt að „þetta sé ekki nýtt Covid“.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Færeyjar Danmörk Spánn Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira