„Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Þórarinn Þórarinsson skrifar 8. maí 2026 12:54 Gunnar Smári er allur að braggast. Hann er aftur byrjaður að taka viðtöl á Samstöðinni sinni og ætlar ekki að kjósa þau sem vilja fylgja eftir áformum Reykjavíkurborgar um að rífa kofann sem krakkar hafa reist við Lynghaga. Vísir/Samsett Samstöðvarstjórinn Gunnar Smári Egilsson er allur að koma til eftir erfið veikindi og kallar eftir afstöðu stjórnmálaflokkanna til spýtukofans sem börn reistu við Lynghaga og til stendur að rífa. „
Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna,“ sagði Gunnar Smári þegar hann kvaddi sér hljóðs í spjallhópnum Rauði þráðurinn á Facebook í morgun og beindi þessum orðum væntanlega ekki síst til frambjóðenda til borgarstjórnar.Eftir tvær klukkustundir hafði færslan uppskorið 50 „læk“ og fimmtán athugasemdir þar sem fram koma ólík sjónarmið þar sem einlægur vilji til þess að leyfa krökkunum að halda kofanum og áhyggjur af öryggi þeirra stangast á. „Það verður að leyfa þeim að hafa hann í friði.“„Þarna eru framtíðarbyggingarmeistarar að æfa sig.“„Auðvitað eiga þau að hafa hann í friði, hægt að hjálpa þeim að hafa hann öruggari.“ Óklárað „meistaraverk“ Kvöldfréttir Sýnar fjölluðu í gær um kofann sem Reykjavíkurborg ætlar að fjarlægja þar sem hann er ekki öryggisvottaður. Rætt var við börn og foreldra sem hafa slegið skjaldborg um „listagalleríið“ eins og krakkarnir kalla bygginguna sem þau sameinuðust um að reisa. Þegar fréttastofa Sýnar leit við í gær voru fjölmörg börn á svæðinu til að sýna stuðning sinn.Vísir/Smári Jökull Krakkarnir höfðu ýmislegt til málanna að leggja og sögðu meðal annars nánast alla í hverfinu hafa sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem áformum borgarinnar er mótmælt.Þá var svarið við því hvað þau vilja að verði gert skýrt og skorinort: „Bara ekki taka hann niður, við erum ekki búin að klára hann.“ „Listagalleríið við Lynghagaróló“ Unnar Þór Sæmundsson, sem skipar 4. sætið á framboðslista Pírata, var með þeim fyrstu sem brugðust við spurningu Gunnars Smára og sagði Pírata vera „að róa öllum árum í að verja þetta meistaraverk“. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, mætti skömmu síðar til leiks á Facebook-vegg sínum þar sem hán tók af öll tvímæli um að hugur fylgi máli frambjóðandans. „Af öllum þeim verkefnum sem borgin sinnir er að færa eða rífa þetta listagallerí ekki og ætti ekki að vera í forgangi,“ skrifar hán en áréttar um leið að öryggi barna er og eigi ætíð að vera markmið borgarinnar. Þessi kofi, eða réttilega listagallerí, eins og hán orðar það, sé þó „akkúrat það sem við þurfum meira af í borginni. Þetta er menning, list, frábært frumkvæði barna og akkúrat virknin sem mótar skemmtilegri borg.“ Ekki endilega mannvonska Þá er eitthvað um að virkir í þessum athugasemdum reyni að skera pólitíkina úr snörunni með því að benda til dæmis á embættismannakerfið. „Þetta er verk freka kallsins í kerfinu, hann þarf ekki að vera háttsettur en ræður einhverju,“ segir í einni athugasemd og í annarri að ofríki „er orðið kerfislægt sem sést best á þessum aðgerðum gagnvart börnum.“ Skilaboðin frá krökkunum eru skýr.Aðsend Þá er sjónum beint að Heilbrigðiseftirlitinu: „Kjörnir fulltrúar geta lítið sem ekkert beitt sér í málum Heilbrigðiseftirlitsins sem starfar nokkuð sjálfstætt á grundvelli laga. Ef það á að breyta eitthvað verkefnum, skyldum og öhh stundum undarlegum áhugamálum Heilbrigðiseftirlitsins þá þarf löggjafinn að gera það.“Þau sem hafa öryggissjónarmið að leiðarljósi velta upp þeim möguleika að ef til vill búi eitthvað annað en mannvonska að baki fyrirhuguðu niðurrifi.„Væri borgin ekki skaðabótaskyld ef þarna yrðu slys. Eru ekki lög eða reglugerðir sem kveða á um öryggi leiktækja á lóðum borgarinnar. Getur verið að eitthvað annað en mannvonska liggi þarna á bak við?“ Lausnamiðaði Kópavogsbúinn „Jú, auðvitað. Kemur Reykjavíkurborg ekkert við heldur gildir þetta um öll sveitarfélög. Segjum að barn slasi sig þarna og hljóti varanlega örorku eða dauða þá er Reykjavíkurborg ábyrg þar sem þessi kofi er á landi hennar.“ Miðinn sem Reykjavíkurborg hengdi á kofann.Aðsend Þessum vangaveltum er einnig svarað með spurningu: „Er borgin ábyrg ef ég dett um gangstéttarkant og brýt tönn?“Svarið berst frá Kópavogi og lausn sem myndi firra borgina ábyrgð látin fljóta með: „Ég veit ekkert um það. Veit bara að hér í Kópavogi þurfa öll leiktæki á lóðum Kópavogsbæjar að vera vottuð. Hlýtur að gilda um RVK líka. Lausnin þarna væri að færa kofann inn á einkalóð.“
Börn og uppeldi Reykjavík Umhverfismál Krakkar Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira