Golf

Drif­krafturinn hjá McIlroy meiri eftir tíma­móta­sigur

Aron Guðmundsson skrifar
McIlroy er afar sigursæll kylfingur en hvergi nærri hættur
McIlroy er afar sigursæll kylfingur en hvergi nærri hættur Vísir/Getty

Rory McIlroy einn fremsti kylfingur heims, segir drifkaftinn hjá sér vera enn meiri eftir sigur hans á Masters-mótinu annað árið í röð.

McIlroy hafði árið áður beðið lengieftir sigri á Masters-mótinu eftir að hafa unnið öll önnur risamót í í golfheiminum. 

Hann er einn af sex kylfingum frá upphafi til þess að hafa unnið öll risamótin og náð hinni eftirsóknarverður alslemmu. Þá er hann aðeins sá fjórði í sögunni til þess að verja Masters-titilinn. 

Eftir sex risatitla hefðu kannski margir haldið að McIlroy væri orðinn saddur en svo er ekki. Drifkraftur Norður-Írans, hungrið í meiri árangur og fleiri titla er meiri en nokkru sinni áður. 

„Ég er spenntur fyrir framhaldinu,“ sagði úthvíldur McIlroy í viðtali á Quail Hollow þar sem framundan er Truist Championship mótið. Völlur þar sem McIlroy vann sitt fyrsta meistaratitil á PGA mótaröðinni árið 2010. 

Hinn 37 ára gamli McIlroy tók sér góða hvíld eftir sigurinn á Masters-mótinu. 

„Ég hélt að með því að vinna alslemmuna myndi líf mitt gjörbreytast. Það gerðist að einhverju leiti en er þó á annan hátt eins og það var fyrir. Ég á nóg eftir af mínum atvinnumannaferli og vil halda áfram að keppa um titla. Sigurinn á Masters-mótinu í ár var staðfesting á þeirri góðu vinnu sem ég hef lagt á mig undanfarin ár til þess að koma mér aftur í þá stöðu að vinna risamót.“

Næsta risamót ársins er PGA meistaramótið sem fer fram dagana 14.-17. maí. Um miðjan júnímánuð fer Opna bandaríska meistaramótið fram og mánuði síðar Opna breska meistaramótið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×