Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Kjartan Kjartansson skrifar 6. maí 2026 13:56 Teikning listamanns af örreikistjörnunni (612533) 2002 XV93. Þegar hún gekk fyrir stjörnu frá jörðu séð í janúar árið 2024 dofnaði og styrktist ljósið frá stjörnunni smám saman sem bendir til þess að þunnur lofthjúpur umljúki hana. AP/Ko Arimatsu/NAOJ Vísbendingar eru um að örreikistjarna utan við braut Plútós sé með þunnan lofthjúp. Hnötturinn væri þá sá minnsti í sólkerfinu með greinilegan lofthjúp sem er tjóðraður við hann með þyngdarkrafti.
Stjörnufræðingar notuðu þrjá sjónauka í Japan til þess að fylgjast með örreikistjörnunni (612533) 2002 XV93 í Kuiper-beltinu þegar hún gekk fyrir stjörnu árið 2024. Með því að mæla hversu mikið ljósið frá stjörnunni dofnaði á meðan á þvergöngunni stóð fundu þeir merki um að næfurþunnur lofthjúpur umlyki hnöttinn. Örreikistjarnan er talin aðeins um fimm hundruð kílómetrar að þvermáli. Hún var í um 5,5 milljarða kílómetra fjarlægð frá jörðinni þegar vísindamennirnir fylgdust með henni. Af þeim sökum kom fundurinn vísindamönnunum á óvart því almennt hefur verið talið að aðeins reikistjörnur, dverreikistjörnur og sum stærri tungl gætu haft eigin lofthjúp. Margfalt þynnri en þunnur lofthjúpur Plútós Lofthjúpurinn er talinn fimm til tíu milljón sinnum þynnri en lofthjúpur jarðar samkvæmt grein sem birtist í vísindaritinu Nature Astronomy á mánudag. Það er fimmtíu til hundrað sinnum þynnra en lofthjúpur Plútós sem hefur verið talið smæsta fyrirbærið í sólkerfinu með lofthjúp sem þyngdarkraftur heldur í skefjum*. Líklegast er talið að metan, köfnunarefni eða kolmónoxíð myndi lofthjúpinn. Uppspretta hans gæti annað hvort verið gosvirkni á yfirboði smáhnattarins eða árekstur við halastjörnu. Fundurinn hefur ekki verið staðfestur. Frekari athuganir, sérstaklega með Webb-geimsjónaukanum gætu varpað frekara ljósi að tilurð lofthjúpsins og efnasamsetningu. „Ef lofthjúpurinn þynnist á næstu árum styddi það að árekstur hefði verið uppsprettan. Ef hann er viðvarandi eða gengur í gegnum árstíðarsveiflur benti það frekar til innri gasuppsprettu,“ segir Ko Arimatsu, aðalhöfundur greinar um rannsóknina frá Stjörnuathuganastöð Japans, við AP-fréttastofuna. *Talað er um lofthjúp sem haldið er við með þyngdarkrafti til þess að undanskilja lofthjúp halastjarna sem steymir frá þeim þegar þær nálgast sólina.
Geimurinn Vísindi Plútó Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira