Saman erum við sterkari Sindri S. Kristjánsson skrifar 6. maí 2026 08:51 Það hefur lengi verið meinlegur vani í íslensku samfélagi að ýta verkefnum á milli ríkis og sveitar, þrefa um það hvort stjórnsýslustigið beri ábyrgð á viðkomandi málaflokki, þæfa mál og gá hvor aðilinn heldur lengur út. Það sem gleymist stundum í daglegu argaþrasi pólitíkusa og embættismanna er að að baki ‚málaflokki‘ og ‚viðfangsefnum‘ sitja einstaklingar, og ‚verkefnin‘ snúast í flestum tilfellum um þjónustu við viðkomandi einstaklinga. Meðan fulltrúar stjórnsýslustiganna sitja í sinni störukeppni eru manneskjur sem líða fyrir; þau sem þurfa á nauðsynlegri þjónustu að halda og aðstandendur þeirra. Þessu vill Samfylkingin breyta. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur nú þegar tekið af skarið þegar ríkið tók yfir málefni barna með fjölþættan vanda og tók að sér framkvæmd og ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við þau börn. Með þeirri ákvörðun var ákveðnu fargi létt af sveitarfélögum, sem eru misvel í stakk búin til að sinna þörfum barna með fjölþættan vanda, en ekki síður af börnunum sjálfum og fjölskyldum þeirra sem þurfa nú vonandi ekki lengur að upplifa að þau séu byrði á samfélaginu sínu. Um það höfum við lesið og heyrt of mörg dæmi, sér í lagi í minni sveitarfélögum. Samhliða samningi um þjónustu við börn með fjölþættan vanda hjó ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á hnútinn sem fyrri ríkisstjórn hafði rammhnýtt, með því að skrifa undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og hraða þeim bráðnauðsynlegu framkvæmdum. Íbúar Akureyrarbæjar hafa ekki farið varhluta af því ástandi sem ríkt hefur í málefnum hjúkrunarheimila allt of lengi, þar sem viðvarandi rakaskemmdir, mygla og óheilnæmt umhverfi í húsnæði dvalarheimila hefur valdið gríðarlegum áskorunum fyrir heimilisfólk sem hefur þvælst á milli herbergja og jafnvel á milli sveitarfélaga, sem hreppsómagar væru. Þetta er óboðleg staða fyrir fólkið sem byggði stoðirnar undir það velmegunarsamfélag sem við búum við í dag. Allt of langur tími hefur horfið í þras um hver beri ábyrgð á viðhaldi hvaða byggingarálmu, og hvar kostnaðurinn eigi að lenda, á meðan fólkið sem er í hvað viðkvæmastri stöðu dettur á milli þilja. Í heimsóknum okkar og samtölum nú fyrir sveitastjórnarkosningar höfum við heyrt setningar á borð við ‚ég kýs engan til að sigra í störukeppni‘ og ‚mikið er gott að sjá ykkur hér saman‘, þegar sveitastjórnarfulltrúar Samfylkingarinnar heimsækja hjúkrunarheimili og aðrar stofnanir ásamt þingmönnum flokksins. Það vekur fólki von að það sé loksins sýnilegur vilji til samstarfs, að traust á milli stjórnsýslustiga sé að byggjast upp og að hægt sé að setja þarfir þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda í fyrsta sætið, samfélaginu öllu til heilla. Í stefnu okkar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar leggjum við til að á Akureyri verði innleidd sama leið og í Mosfellsbæ sem kallast Gott að eldast. Þar er áherslan lögð á einstaklinginn og þjónusta við hann er samþætt. Þannig er horft til þarfa viðkomandi, óháð því hvort ríki eða sveit beri ábyrgð á málaflokknum. Heimahjúkrun og heimaþjónusta er samþætt og félagsþjónusta og heilbrigðisþjónusta einnig. Einstaklingurinn hefur fastan tengilið við kerfið sem hjálpar bæði honum og aðstandendum sem sligast of oft af umönnunarbyrðinni, þegar þeir þurfa að brúa bil sem verður í þjónustu. Aðstandendur eiga að fá að vera aðstandendur, ekki umönnunaraðilar. Það gefur auga leið að hægt er að ná fram hagræðingu með samþættingu þjónustu, það getur til að mynda ekki verið hagkvæm lausn að heimaþjónusta mæti að morgni til að aðstoða fullorðinn einstakling í sokkana og hálftíma seinna kemur heimahjúkrun með morgunlyfin. Við í Samfylkingunni á Akureyri setjum þarfir íbúa ávallt í fyrsta sæti og gætum hagsmuna þeirra. Við teljum að við séum sterkari saman og ætlum okkur ekki að skilja neinn eftir á milli kerfa, fáum við til þess umboð þann 16. maí næstkomandi. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar