Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. maí 2026 07:59 „Einhverfa er ekki listi af einkennum heldur taugafræðilegur munur á því hvernig heilinn vinnur úr skynjun, samskiptum og upplýsingum,“ segir Vigdís. Getty „Sem klínískur sálfræðingur hef ég í vaxandi mæli orðið vör við hve margar konur hafa búið árum saman með ógreinda einhverfu og hve mikill munur verður á líðan þegar þær fá loksins skýringuna. Konur með langvinnan kvíða, þunglyndi eða átraskanir hafa oft reynt hefðbundnar meðferðir án þess að ná fullum bata.“
Þetta segir sálfræðingurinn Vigdís M. Jónsdóttir í aðsendri grein á Vísi, sem hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. Í greininni segir Vigdís umræðu um einhverfu kvenna hafa aukist mikið á undanförnum árum, sérstaklega meðal fullorðinna sem fá greiningu seint á ævinni. „Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum, og rannsóknir og greiningarviðmið í kennslubókum voru byggð á því hvernig einhverfa birtist hjá ungum drengjum. Stúlkur féllu utan rammans — og fullorðnar konur enn frekar. Þrátt fyrir framfarir í greiningum og aukna þekkingu á taugabreytileika kvenna, glímir sífellt stærri hópur kvenna við áratugi af kvíða, þunglyndi, átröskun og hafa margar fengið rangar greiningar (t.d. persónuleikaröskun) án þess að fá nokkurn tíma rétt svör,“ segir Vigdís. Hún segir að fyrir margar konur sé greining lykillinn að upplifun þeirra; skýring á því „hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf jafn lýjandi, og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim“. Blómstra þegar þær fá að vera þær sjálfar Grein Vigdísar er yfirgripsmikil og fróðleg, þar sem hún leitast við að útskýra hvers vegna færri stúlkur greinast með einhverfu en drengir og hvernig einhverfa birtist öðruvísi meðal stúlkna og kvenna. Þar nefnir hún meðal annars að skynjun sé sterkari en hjá flestum, félagsleg samskipti lærð en ekki sjálvirk, áhugamál fá en djúp, þörfin fyrir fyrirsjáanleika mikil, tilfinningar sterkar, þreyta mikil eftir samskipti og líkamleg einkenni algeng. Vigdís lýsir því einnig hvernig margar konur fela einhverfu sína í daglegu lífi, meðvitað eða ómeðvitað. Þá geti einhverfan haft djúpstæð áhrif á sjálfsmyndina. „Að uppgötva einhverfu, hjá sjálfum sér eða einhverjum nákomnum, er ekki endapunktur. Það er upphaf. Upphaf þess að sjá sjálfan sig frá nýju sjónarhorni, að vinna úr áföllum, að gefa sér leyfi til að vera nákvæmlega sá sem maður er,“ segir Vigdís. „Tími er kominn til að einhverfa kvenna verði sýnileg innan heilbrigðis- og menntakerfis og að birtingarmynd hennar verði þekkt, ekki aðeins meðal sérfræðinga, heldur einnig meðal foreldra, kennara og kvennanna sjálfra. Það krefst víðsýni og þverfaglegrar hugsunar en fyrir þær sem hafa lifað í þögn árum saman getur það skipt sköpum.“ Hún segir konur með einhverfu blómstra þegar þær fá loksins að vera þær sjálfar, með stuðningi, skilningi og virðingu. „Ef þú lest þetta og sérð sjálfa þig í lýsingunum, þá vil ég segja við þig: það er ekkert að þér. Þú ert ekki of mikið og þú ert ekki ein.“
Heilbrigðismál Kvenheilsa Einhverfa Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira