Lively og Baldoni náðu sáttum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. maí 2026 22:43 Leikararnir hafa háð stríð sitt fyrir dómstólum og fjölmiðlum í rúmt ár. Vísir/Samsett Leikararnir Blake Lively og Justin Baldoni hafa náð sáttum eftir rúmlega árslangar deilur í dómstólum og fjölmiðlum. Málsmeðferð átti að hefjast innan tveggja vikna.
Lögmenn Lively og Baldoni gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem því er fagnað að málið hafi verið leitt í jörð. Í yfirlýsingunni er vikið að kæruefni Blake Lively með þeim hætti að sagt er að áhyggjur hennar hafi verðskuldað áheyrn. „Við erum staðföst í að tryggja að vinnustaðurinn sé laus við óviðeigandi hegðun og anda sem dregur úr afköstum. Það er einlæg ósk okkar að þetta leiði málið til farsælla lykta og geri öllum hlutaðeigandi kleift að halda áfram á uppbyggilegan og friðsælan hátt, og í umhverfi virðingar,“ segir í yfirlýsingu lögmannanna. Málsmeðferð átti að hefjast 18. maí en málið rekur sig til ársins 2024 þegar Lively höfðaði mál á hendur Baldoni og sakaði hann um kynferðislega áreitni við tökur á kvikmyndinni It Ends With Us. Baldoni neitar sök og höfðaði sjálfur mál á hendur Lively þar sem hann sakaði hana um fjárkúgun og ófrægingarherferð. Máli hans var vísað frá í júní í fyrra. Dómari vísaði svo tíu af þrettán kröfum Blake Lively frá í upphafi þessa mánaðar, þar á meðal kröfum sem vörðuðu kynferðislega áreitni og ærumeiðingar. Dómkröfur hennar sem vörðuðu samningsbrot og ófrægingarherferð voru látnar standa.
Deilur Justin Baldoni og Blake Lively Bandaríkin Hollywood Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira