Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Aron Guðmundsson skrifar 4. maí 2026 22:25 Helgi Jónas er enginn aukvissi þegar kemur að körfubolta. Hann er ósáttur með skipulag Grindavíkur liðsins en sonur hans, Arnór Tristan, spilar með liðinu. Vísir/Samsett Helgi Jónas Guðfinnsson, goðsögn í sögu Grindavíkur í körfubolta og faðir núverandi leikmanns félagsins Arnórs Tristans, gagnrýnir skipulag liðsins í færslu á samfélagsmiðlum eftir tap Grindavíkur gegn Val í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar. „
Jæja á maður að þegja? Nei!!!! Skipulag Grindavíkurliðsins er fyrir neðan allar hellur!!!,“ skrifar Helgi í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook í kvöld eftir sex stiga tap Grindavíkur gegn Val, 85-79, en úrslitin gera það að verkum að liðin munu mætast í oddaleik í Grindavík þar sem í boði verður sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar. Helgi er þungavigtarmaður í sögu körfuboltans í Grindavík en hann varð bæði Íslandsmeistari sem leikmaður Grindavíkur árið 1996 og sem þjálfari liðsins árið 2012. Helgi Jónas í leik með Grindavík á sínum tíma Þá varð hann í þrígang bikarmeistari með Grindavík sem leikmaður og einu sinni sem þjálfari. Í þrígang var hann valinn í úrvalslið efstu deildar og í tvígang valinn besti leikmaðurinn, tímabilin 1998 og 2003. Með sigri á Hlíðarenda í kvöld hefði Grindavík tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar en nú er orðið ljóst að bæði undanúrslitaeinvígi deildarinnar fara í oddaleik. Oddaleikirnir fara fram á miðvikudaginn næstkomandi. Annars vegar tekur Tindastóll á móti Stjörnunni í Síkinu á Sauðárkróki og hins vegar mun Grindavík taka á móti Val í Grindavík. Báðir oddaleikir undanúrslitanna verða sýndir í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar.
Bónus-deild karla Grindavík Valur Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira