Met Gala-bölvunin alræmda Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. maí 2026 16:02 Er Met Gala bölvunin raunveruleg? Mörg pör virðast hafa hætt saman stuttu eftir að þau mættu saman á þessa rosalega vinsælu tískuhátíð. Getty Stærsta og heitasta tískuhátíð ársins fer fram með pompi og prakt í kvöld þar sem þemað er Búningalist eða Costume Art. Þangað mæta allar helstu stjörnur í heimi en samkvæmt alræmdri Met Gala bölvun virðist ekki vænlegt til vinnings að mæta með maka á dregilinn.
Tímaritið Cosmopolitan birti færslu um þessa svokölluðu bölvun sem segir að þegar stjörnupar mæti saman á þennan gríðarlega vinsæla viðburð eigi sambandið einungis nokkra mánuði eftir ólifað. „Já, þetta hljómar kannski kjánalega en það eru einfaldlega of mörg dæmi um það hvernig bölvunin hefur dreift djöfullegum göldum sínum á ákveðin stjörnupör í gegnum tíðina,“ stendur í færslunni. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Dæmi um slík pör eru meðal annars raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og grínistinn Pete Davidson sem mættu saman árið 2022 en svo slitnaði upp úr sambandi þeirra þremur mánuðum síðar. Meðan allt lék í lyndi! Pete Davidson klæddist Dior og Kim Kardashian var eftirminnilega í kjól frá Marilyn Monroe sem Jean Louis hannaði á Met Gala árið 2022. Ást Pete og Kim entist ekki út árið. Chris Polk/WWD/Penske Media via Getty Images Tónlistarmaðurinn Shawn Mendes og förðunarmógúllinn Hailey Bieber fóru sem kærustupar á Met Gala árið 2018 og hættu saman mánuði síðar. Svipaða sögu má segja um tónlistarfólkið Selena Gomez og The Weeknd, þau litu út fyrir að vera yfir sig ástfangin af hvort öðru á tískuhátíðinni 2017 en voru farin í sundur fimm mánuðum síðar. View this post on Instagram A post shared by Cosmopolitan (@cosmopolitan) Tónlistarkonan Sabrina Carpenter og leikarinn Barry Keoghan afhjúpuðu ást sína á dreglinum á Met Gala 2024 en ástin fuðraði upp áður en sama ár kláraðist. Fleiri pör sem hafa orðið fyrir meintri bölvun eru leikararnir Jamie Campell Bower og Lily Collins, tónlistarmaðurinn A$AP Rocky og fyrirsætan Chanel Iman og breski hjartaknúsarinn Paul Mescal og bandaríska tónlistarkonan Phoebe Bridgers. Ekkert þessara ástarsambanda náði að endast út árið eftir að pörin mættu á Met Gala. Það verður því forvitnilegt að fylgjast með stjörnupörum kvöldsins láta reyna á bölvunina og sjá hvar þau verða að ári liðnu.
Tíska og hönnun Bandaríkin Menning Ástin og lífið Hollywood Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira