Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 4. maí 2026 09:31 Það gerist ekki á hverjum degi að ríki og sveitarfélag nái saman um stórfellda uppbyggingu sem getur raunverulega breytt stöðu þúsunda fjölskyldna. Þess vegna boða þeir samningar sem við fjármálaráðherra undirrituðum ásamt félags- og húsnæðisráðherra í upphafi vikunnar, um nýtingu ríkislóða og ríkiseigna í Reykjavík, stór tímamót. Hér er verið að leggja grunn að 1.200 til 1.400 nýjum íbúðum á næstu árum, á sama tíma og mörg eldri ágreiningsmál eru leyst með skynsamlegum hætti. Fólk þarf heimili. Á meðan skortur á húsnæði þrýstir upp verði og leigu, og ungt fólk, fjölskyldur og eldri borgarar finna fyrir vaxandi óöryggi, skiptir mestu máli að lóðir fari í uppbyggingu og að framkvæmdir hefjist. Þessir samningar tryggja einmitt það. Um er að ræða íbúðauppbyggingu á lykilstöðum í borginni, meðal annars í Borgartúni, við Grensásveg, á efri hluta Laugavegar, við Laugarnesveg, á Seljavegi og austan Korpúlfsstaða. Þar með er ekki aðeins verið að fjölga íbúðum heldur einnig að nýta betur land og eignir sem þegar eru til staðar. Það er skynsamleg borgarþróun, hagkvæm nýting innviða og ábyrg nálgun í skipulagsmálum. Sérstaklega ber að fagna því að 20 til 30 prósent íbúðanna verði hagkvæmar íbúðir. Þar undir falla almennar íbúðir, leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, íbúðir fyrir eldra fólk og búseturéttaríbúðir. Þetta skiptir máli. Húsnæðismarkaðurinn leysir ekki einn og sér þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Samfélagið þarf að tryggja fjölbreytt búsetuform og raunveruleg tækifæri fyrir fólk með ólíkar þarfir og mismunandi greiðslugetu. Samningarnir sýna líka hvað næst þegar stjórnvöld vinna saman í stað þess að standa hvort gegn öðru. Of lengi hafa mál sem þessi setið föst í kerfum, ágreiningi og togstreitu milli stjórnvaldsstiga. Nú hefur önnur leið verið farin: lausnamiðað samstarf og framkvæmdahugur. Auðvitað verður alltaf hægt að deila um einstök atriði, verð, útfærslur og tímasetningar. Það fylgir öllum stórum verkefnum. En meginatriðið má ekki týnast í smáatriðunum. Þessi niðurstaða þýðir fleiri heimili, meira framboð og sterkari borg til framtíðar. Reykjavík þarf meiri uppbyggingu. Ísland þarf meiri uppbyggingu. Fólkið sem bíður eftir öruggu húsnæði þarf aðgerðir. Þess vegna voru þessir uppbyggingarsamningarnir nauðsynlegir. Þeir voru flóknir, tóku langan tíma en þeir standa líka uppúr sem eitt mikilvægasta framlag okkar samstarfsflokkanna í borgarstjórn til byggingarsögu Reykjavíkur á þessu stutta kjörtímabili sem senn er á enda. Við sögðumst ætla að fjölga íbúðum og tryggja uppbyggingu og nú eru 1200-1400 íbúðir komnar í farveg á ríkislóðum ásamt nýju hverfi í Höllum í Úlfarsárdal sem rísa mun á komandi árum. Þetta eru verk sem skipta máli. Höfundur er borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiða Björg Hilmisdóttir Borgarstjórn Húsnæðismál Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Skoðun Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Sjá meira
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun