„Það fer í taugarnar á mér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 21:48 Hermann Hreiðarsson var ósáttur við dómarana eftir leik og lét þá heyra það. Hann vildi þá sjá meiri ákefð frá sínu liði. Vísir/Diego Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var súr með 4-1 tap sinna manna fyrir KR á Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.
Valsmenn byrjuðu fínt áður en KR-liðið tók hreinlega öll völd á vellinum. Albin Skoglund skaut í stöng úr góðu færi og þá átti Lúkas Logi Heimisson að fá víti snemma leiks, áður en KR komst yfir. „Mér fannst við byrja ógnarsterkt hérna, fáum tvö dauðafæri og áttum að fá vítaspyrnu. Mómentið var með okkur en svo fáum við á okkur mark og mörk breyta leikjum. Það breytti rytmanum aðeins, það sló okkur út af laginu, ég viðurkenni það,“ segir Hermann. Valur stillti upp í fjögurra manna vörn með fimm varnarmenn inn á. Einn þeirra, Myles Veldman, var svokallaður frakki á Aron Sigurðarsyni og fylgdi honum hvert fótmál. Hermanni fannst það ganga fínt framan af en breytti um kerfi eftir hlé þar sem KR leiddi 2-0 í hálfleik. „Ég var ánægður með hvernig þetta gekk framan af og við hleypum leiknum upp í smá kaós, sem mér fannst ganga fínt. En þú verður að taka færin, við gerðum það ekki. Það var skítt að fá þetta mark úr föstu leikatriði og annað undir lokin á fyrri hálfleiknum,“ segir Hermann. Þér fannst þið ekki mæta ofjörlum ykkar í dag? „Alls ekki. Það er 2-0 ef við nýtum færin. Þá ertu bara í toppmálum hérna.“ Emil Larsen, markmannsþjálfari Vals, fékk rautt spjald í hálfleik fyrir dómaratuð.Vísir/Diego Emil Larsen, markmannsþjálfari Vals, fékk rautt spjald fyrir almenn leiðindi við dómarateymið í hálfleik. Af hverju? „Ég vissi ekki einu sinni af því. En ætli það sé ekki eitthvað með vítaspyrnudóminn. Þetta var pjúra vítaspyrna. En ég veit ekki alveg hvað hann hefur sagt.“ Hvað taka Valsmenn út úr þessu? „Við lærum helling af þessum leik en svo þarf að hrósa KR-liðinu líka. Þeir hlupu meira, eltu vonlausa boltann. Það fer í taugarnar á mér, að þeir hafi verið aggressívari en við,“ segir Hermann.
Valur KR Besta deild karla Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Fram - Grindavík/Njarðvík | Vilja komast í úrslit í fyrsta sinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Sjá meira