Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar 2. maí 2026 19:30 Í aðdraganda kosninga hafa Garðbæingar heyrt mörg loforð um aukin fríðindi, lækkun gjalda og ný kostnaðarsöm verkefni. Talað er um, fleiri gjaldfrjálsar stundir í leikskólum, hækkun Hvatapeninga og ýmsar aðrar aðgerðir sem allar kosta verulega fjármuni. Sjálfsagt hljómar margt af þessu vel. En það þarf líka að ræða hver eigi að greiða fyrir loforðin og hvort bæjarsjóður standi raunverulega undir þeim. Garðabær er nú þegar meðal skuldsettari sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna telur Miðflokkurinn að nú sé mikilvægara en nokkru sinni að sýna ábyrgð í rekstri og fara skynsamlega með fjármuni bæjarbúa. Það er auðvelt að lofa meiru fyrir kosningar. Erfiðara er að standa undir því þegar reikningurinn kemur. Miðflokkurinn telur einnig að minnihlutinn í bæjarstjórn hafi á undanförnum árum ekki veitt meirihlutanum nægjanlegt aðhald. Oft hefur skort gagnrýnar spurningar um stór verkefni, útgjaldaaukningu og stefnu í skipulagsmálum. Heilbrigð bæjarstjórn þarf öflugt aðhald og skýra umræðu um forgangsröðun verkefna. Við teljum jafnframt að skipulagsmál í Garðabæ eigi að þróast með meiri áherslu á mannvæn hverfi, lágreistari byggð og betra jafnvægi milli fjölbýlis og sérbýlis. Garðabær á að halda þeirri sérstöðu sem hefur gert bæinn eftirsóknarverðan fyrir fjölskyldur. Stöðvum Reykjavíkur væðingu Garðabæjar. Miðflokkurinn hefur einnig gagnrýnt Borgarlínuna og telur verkefnið alltof dýrt miðað við þann ávinning sem Garðbæingar fá af því. Við viljum frekar verja fjármunum í verkefni sem bæta þjónustu, innviði og nærumhverfi bæjarbúa með beinum hætti. Í skólamálum leggjum við áherslu á að öll börn fái þann stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Mikilvægt er að nemendur búi yfir nægjanlegri íslenskukunnáttu til að geta tekið fullan þátt í skólastarfi og að kennarar hafi raunhæfar aðstæður til að sinna kennslu. Miðflokkurinn telur einnig mikilvægt að sveitarfélagið gæti ábyrgðar þegar kemur að félagslegum stuðningi og móttöku fólks. Stoðkerfi samfélagsins eiga að hjálpa þeim sem raunverulega þurfa á því að halda, en ekki skapa aðstæður þar sem hægt er að misnota kerfið á kostnað skattgreiðenda. Garðabær hefur byggst upp sem sterkt og fjölskylduvænt sveitarfélag. Til að svo verði áfram þarf skýra sýn, ábyrg fjármál og kjark til að setja hagsmuni bæjarbúa í fyrsta sæti. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Garðabær Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira