„Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 13:05 Magnús Stefánsson er allt annað en sáttur við meðhöndlun HSÍ á málinu og að sambandið hafi faktískt neytt ÍBV til að setja 14 ára leikmann í hóp. Eyjafólk fann aðra lausn fyrir leik dagsins. vísir/Anton Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handbolta, gerir athugasemdir við starfshætti HSÍ í aðdraganda úrslitaeinvígis ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn. Stjórn sambandsins bregðist skyldum sínum gagnvart barnungum iðkendum.
Amalie Fröland, markvörður ÍBV, sleit krossband í oddaleik Eyjakvenna við Hauka á dögunum og ljóst að hún missir af úrslitaeinvíginu. Hún er ein aðeins tveggja markvarðar í aðalliðshópi ÍBV og um mikið áfall að ræða. „Það er stórt skarð að fylla að missa Amalie út úr þessu. Aðallega er það áfall fyrir hana að detta út svona á lokasprettinum. Það er leiðinlegt. En það bíður þá stærra hlutverk fyrir Ólöfu sem hefur verið backup fyrir hana í vetur. Hún er búin að sýna okkur að hún er starfinu vaxin og tæklar þetta eins og meistari,“ segir Magnús og vísar þar til Ólafar Maren Bjarnadóttur. Hefði haldið að HSÍ vildi vernda börn Næsti markvörður inn hjá Eyjakonum er aðeins 14 ára gömul og eðli málsins samkvæmt hugðist þjálfarateymið ekki stilla barni upp á þessu stóra sviði sem blasir við. ÍBV sótti því um undanþágu til neyðarláns til HSÍ. Félagið vildi fá Eyjakonuna Andreu Gunnlaugsdóttur, markvörð Gróttu, á skammtímalán yfir úrslitaeinvígið. „Við sendum þarna beiðni um neyðarlán, að fá markmann á láni, tiltekinn markmann sem spilar í Grillinu í dag og er leikmaður sem er uppalin hjá okkur í ÍBV. Við gerum það að þá forsendum að okkur þyki ekki forsvaranlegt að setja 14 ára leikmann í þær aðstæður að spila við fullorðnar konur,“ segir Magnús. „Okkur fannst alveg borðleggjandi að þetta myndi fara hratt og örugglega í gegn. Fyrirfram hefði ég haldið að það væri einhver stefna hjá HSÍ eða ÍSÍ að vernda börn og ekki setja þau í aðstæður sem þeir ráða ekki við. Þess vegna kom okkur í opna skjöldu að svarið hafi verið nei, sem var illa rökstutt svar og óskiljanlegt með öllu,“ „Úr því að við erum að gæta hagsmuna ungs leikmanns þykir okkur þetta döpur niðurstaða,“ segir Magnús. Myndi frekar setja sjálfan mig í markið Blessunarlega hafi Eyjafólk haft upp á markverði í eynni, sem hefur þó ekki leikið handbolta lengi. Hvernig leysið þið þetta fyrir leikinn við Val í dag? Eruð þið með einn markvörð á skýrslu eða er sú 14 ára með í för? „Það kemur bara alls ekki til greina undir neinum kringumstæðum að hún sé í hóp. Ég myndi frekar setja sjálfan mig í markið en að setja eitthvað barn inn á völlinn. Við leysum þetta í dag þannig að það er með okkur stelpa sem var að spila með okkur í yngri flokkum og hún mun verma þetta sæti í leiknum í dag að minnsta kosti,“ segir Magnús og vísar þar til Töru Sólar Úranusdóttur sem hefur ekki spilað handbolta um nokkurra missera skeið, en mætir nú til leiks í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. „Við erum virkilega þakklátir að hún sé til í þetta og tilbúin að stökkva inn og hlaupa undir baggann.“ ÍBV á móti Val og HSÍ Nýta menn þetta ekki bara sem bensín og að þjappa hópnum saman fyrir komandi verkefni? „Að sjálfsögðu var það þannig þegar þessi niðurstaða var kunngjörð, þá er þetta bara orðið ÍBV á móti Val og HSÍ í huganum á stelpunum sem finnst þetta mótlæti, og öllum öðrum finnst þetta bara mjög skrýtið,“ „Ég hef fengið símtöl frá vel flestum þjálfurum í deildinni sem, áður en þessi niðurstaða kom fram, buðu mér fram sína markmenn sem væru til í að koma og hjálpa okkur og vera á bekknum. Úr því að þetta væri landslagið hjá okkur,“ „Þannig að þetta er bara mótlæti sem við nýtum. Annars verður bara HSÍ að svara fyrir það hvers vegna þeir séu að bjóða upp á það að 14 ára leikmaður stigi fæti inn á völlinn,“ segir Magnús. Leikur eitt í úrslitaeinvígi Vals og ÍBV er klukkan 15:00 í dag og verður lýst beint hér á Vísi.
Olís-deild kvenna ÍBV Vestmannaeyjar Valur Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira