Körfubolti

Tíu stoð­sendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Martin var duglegur að mata liðsfélagana í svekkjandi tapi fyrir toppliðinu.
Martin var duglegur að mata liðsfélagana í svekkjandi tapi fyrir toppliðinu. Soeren Stache/picture alliance via Getty Images

Martin Hermannsson og félagar hans í Alba Berlín virðast þurfa að líta eftir deildarmeistaratitilinum í þýsku úrvalsdeildinni í hendur Bayern Munchen eftir tap fyrir síðarnefnda liðinu síðdegis.

Bayern var fyrir leikinn með 50 stig á toppi deildarinnar en Alba með 46 stig í öðru sæti, en hafði einnig leikið leik meira. Ljóst var að Berlínarbúar þurftu sigur til að halda titilbaráttunni á lífi.

Úr varð spennandi leikur þar sem liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta. Bayern náði góðm kafla í öðrum leikhluta og komst mest níu stigum yfir en í hálfleik var staðan 42-37. Alba svaraði í þeim þriðja og komst mest fimm stigum yfir, 54-49, en Bæjarar svöruðu.

Staðan var jöfn 56-56 fyrir fjórða leikhlutann og spennan mikil. Þar voru það heimamenn frá Munchen sem stýrðu ferðinni og komust ellefu stigum yfir, 80-69, þegar þrjár mínútur voru eftir og var það mesti munurinn sem verið hafði í leiknum fram að því.

Alba svaraði með átta stigum í röð og aðeins þriggja stiga munur, 80-77, þegar 44 sekúndur lifðu leiks. Bayern svaraði með þristi til að komast 83-77 yfir 16 sekúndum síðar og niðurstaðan ljós.

Martin Hermannsson gaf tíu stoðsendingar í liði Alba Berlín og skoraði auk þess tvö stig og tók tvö fráköst.

Bayern vann 85-79 sigur og er með 52 stig á toppi deildarinnar eftir 31 leik, Alba Berlín er með 46 stig og hefur spilað 32 leiki. Bayern verður því deildarmeistari en úrslitakeppnin tekur við þegar 34 umferðum er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×