Golf

Lands­mót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport

Valur Páll Eiríksson skrifar
Axel Bóasson leiðir Íslandsmót innanhúss í golfi fyrir lokahringinn sem leikinn verður í dag.
Axel Bóasson leiðir Íslandsmót innanhúss í golfi fyrir lokahringinn sem leikinn verður í dag. Kylfingur.is

Landsmóti Íslands í golfhermum klárast með lokahring mótsins í kvöld. Þau Axel Bóasson og Heiðrún Hlynsdóttir leiða mótið fyrir lokahringinn sem klárast í kvöld.

Golfvellir landsins fara að opna einn af öðrum næstu vikur og spennan mikil fyrir golfsumrinu. Margur hefur þurft að gera sér golfherma að góðu yfir vetrarmánuðina og fremstu kylfingar landsins þar ekki undanskildir.

Íslandsmót innanhúss í golfi hefur staðið yfir síðustu tvær vikur og verður leitt til lykta í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3 í kvöld.

Annarri umferð mótsins lauk mánudaginn 27. apríl síðastliðinn en mótið er leikið á tölvugerðri útgáfu Korpúlfsstaðavöll, hvar Íslandsmótið í golfi fer fram í sumar.

Axel Bóasson leiðir mótið í karlaflokki, að stórum hluta þökk sé stórkostlegum fyrsta hring þar sem hann lék á 60 höggum. Hann fór annan hringinn á 65 höggum og er alls á 17 undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Þar á eftir kemur Sigurður Arnar Garðarsson á 15 undir pari og næstu menn á 13 undir.

Mikil spenna er í kvennaflokki þar sem Heiðrún Anna Hlynsdóttir, sem varð stigameistari GSÍ-mótaraðarinnar í fyrra, fór fyrri hring sinn á 68 höggum og þann síðari á 65 höggum. Hún leiðir kvennaflokkinn á ellefu undir pari.

Eva Kristinsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir sækja fast á hæla hennar á tíu höggum undir pari og Katrín Hlynsdóttir er á níu undir pari.

Lokahringur mótsins er leikinn í dag. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn Sport Ísland 3 frá klukkan 19:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×