Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar 1. maí 2026 12:48 Kópavogur varð til í húsnæðiskreppu. Fólk á hrakhólum frá Reykjavík fékk úthlutaðar landsspildur til sjálfsþurftarbúskapar í móanum fyrir utan borgina. Spildurnar voru úr jörðum í eigu ríkisins, Kópavogi og Digranesi. Átak í ræktun lands í Kópavogi var atvinnubótavinna í tíð kreppunnar miklu. Fólkið sem fluttist að og byggði upp bæinn var að stofni til ungt barnafólk. Svo mikið raunar að á tímabili innrituðust fleiri börn í skóla í Kópavogi en í gjörvallri Reykjavík. Þetta unga fólk og börn þess festu rætur og bærinn óx og dafnaði. Í dag fækkar fólki á barneignaraldri í bænum. Það er góð leið til að hola bæjarfélagið að innan að hrekja stofninn af framtíðarbæjarbúum burt. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að verkalýðsbarátta okkar daga hefur að miklu leyti, jafnvel umfram annað, snúið að húsnæðismálum. Með samkomulagi 2016 var almenna íbúðakerfinu komið á fót í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og verkalýðshreyfingarinnar. Sama ár var flaggskip kerfisins, Bjarg íbúðafélag, stofnað af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið sem sjálfseignarstofnun og sér um uppbyggingu íbúðahúsnæðis til leigu fyrir lágtekjufólk sem kemst ekki annars staðar að í húsnæði. Bjarg er óhagnaðardrifið og er leiga því á kostnaðarverði, án arðsemiskröfu. Aðkoma sveitarfélaga og ríkisins felst í svokölluðu stofnframlagi, langtímaláni sem fæst endurgreitt með hóflegum vöxtum og verðbótum eftir 50 ár. Miðað er við að almenna kerfið grípi fólk í 3. og 4. tekjutíund; venjulegt vinnandi fólk sem ekki hefur tekjur til að leigja á almennum markaði svo við verði unað. Sami hópur og eignaðist heimili innan verkamannabústaðarkerfisins áður en kerfið var lagt af um síðustu aldamót. Bjarg býður þannig upp á vandað og öruggt húsnæði á mun lægri leigu en á markaði. Öllum reynslusögum ber þó saman um að það mikilvægasta við Bjarg sé húsnæðisöryggið, að geta eignast heimili án þess að eiga hættu á að leigusamningnum sé sagt upp með litlum fyrirvara. Að þurfa ekki að flytja og skipta um umhverfi með reglulegu millibili. Að geta fest rætur. Í Kópavogi eru engar almennar íbúðir á vegum Bjargs, en um 500 Kópavogsbúar eru á biðlista eftir almennri leiguíbúð. Sveitarfélagið er það eina á höfuðborgarsvæðinu sem ekki hefur tekið þátt í uppbyggingu með Bjargi. Í febrúar hafnaði meirihlutinn í bæjarráði umsókn Bjargs um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum í Vatnsendahvarfi. Það er mikilvægt að undirstrika að umsókninni var ekki hafnað af praktískum ástæðum heldur hugmyndafræðilegum. Í bókun segir meirihluti bæjarráðs að meiri- og minnihluta greini á um leiðir að því markmiði að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. „Sala á byggingarrétti á markaðsverði er sanngjarnasta leiðin til að tryggja að allir sitji við sama borð,“ er svar meirihlutans. En markaðurinn hefur ekki boðið upp á lausnir fyrir þennan hóp og í Kópavogi hafa verið teknar ákvarðanir sem vinna gegn því að þessum hópi sé boðið upp á húsnæði sem hann ræður við. Ákvörðun um að úthluta byggingarrétti til hæstbjóðanda, til viðbótar við um 170% hækkun á gatnagerðargjöldum frá 2021, og skipulagsáherslum um að leyfa ítrekað breytingar á deiliskipulagi til að heimila uppbyggingu á stærri og dýrari íbúðum er hugmyndafræðileg ákvörðun um að gera ekkert til þess að mæta neyðinni á húsnæðismarkaði. Þessar stóru og dýru íbúðir seljast illa í dag og standa því meira eða minna tómar. Á meðan ég óska Kópavogsbúum gleðilegs 1. maí vil ég minna aftur á að bærinn var byggður upp af ungu alþýðufólki sem komst ekki annars staðar að, sama hópi og er í dag neitað um þak yfir höfuðið á hugmyndafræðilegum grundvelli. Það er ágæt áminning um að baráttu verkalýðshreyfingarinnar um bætt kjör vinnandi fólks er hvergi nærri lokið. Samfylkingin í Kópavogi mun ekki skila auðu í þeirri baráttu. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Már Torfason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Samfylkingin Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar