Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. maí 2026 12:07 Grín Tvíhöfða í Vikunni með Gísla Marteini, sem sneri að þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst, hefur dregið dilk á eftir sér. Anton Brink/Arnar Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir Jón Gnarr ekki hafa sent reikning á Ríkisútvarpið vegna umdeilds grínatriðis í Vikunni með Gísla Marteini og þar af leiðandi hafi hann ekki fengið greitt fyrir það. Hefði hann sent reikning hefði hann, líkt og aðrir listamenn sem koma fram í þáttunum, fengið laun.
Í samtali við fréttastofu ítrekar Stefán það sem fram kom í fundargerð Ríkisútvarpsins í lok mars um að allir sem koma fram í sjónvarpsþáttum Rúv, hvort sem það eru tónlistarmenn eða skemmtikraftar, fái greitt fyrir það samkvæmt gildandi taxta. Greiðslan sé þó háð því að viðkomandi sendi Ríkisútvarpinu reikning. Þar sem Jón Gnarr hafi ekki sent reikning hafi hann ekki fengið laun fyrir innslagið. Haft eftir fundargerð Málið snýr að innslagi í dagskrárliðnum Fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini þann 20. mars. Í innslaginu ræðir hann við Tvíhöfðabræðurna Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson í hlutverki tvíeykisins Plató, sem er andvígt þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í ESB. Í áðurnefndri fundargerð stjórnar Rúv segir orðrétt að Jón Gnarr „fái eins og aðrir skemmtikraftar sem séu með skemmtiatriði í þáttunum RÚV greitt fyrir sína framkomu í þættinum.“ Í frétt Mbl.is í gær er ályktað út frá þessum orðum að Jón Gnarr hafi fengið greitt fyrir innslagið. Fundurinn fór fram fimm dögum eftir að innslagið var sýnt og því er líklegt að ekki hafi legið fyrir þá hvort Jón ætti eftir að senda reikning eða ekki. Jón Gnarr baðst undan viðtali vegna málsins í gær en birti í gærkvöldi færslu á Facebook þar sem hann sagðist margoft hafa komið fram í Vikunni með Gísla Marteini og aldrei þegið krónu fyrir. Hann skaut fast á Morgunblaðið og sakaði það um óvandaða blaðamennsku og „pólitískan hráskinnaleik.“
Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisútvarpið Bíó og sjónvarp Viðreisn Kjaramál Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Sjá meira