Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar 30. apríl 2026 15:32 Píratar vilja borg þar sem öll fá að njóta sín og gera skemmtilega hluti saman. Þess vegna vilja Píratar besta borgina fyrir skynsegið fólk (e. neurodivergent). Undir skynsegin falla þau „sem búa yfir taugakerfi sem stendur utan normsins. Hér á Íslandi hefur sprottið fram nýyrðið “skynsegin” til að lýsa þessu fyrirbæri, að vera með “hinsegin skynjun” en undir það falla til dæmis einhverfa, ADHD, áráttu- og þráhyggjuröskun, Touretta og lesblinda.“[i] Aðgengi að borginni er margvíslegt og Píratar vilja besta borgina fyrir skynsegið fólk til að tryggja greitt aðgengi að þjónustu bæði í raun- og netheimum, hátíðum eða í borgarlandinu. Þetta snýst ekki bara um skilgreiningar heldur upplifun. Um það hvort borgin okkar sé staður þar sem öll geta farið á viðburði, fengið þjónustu eða einfaldlega farið út í daginn án þess að verða fyrir yfirþyrmandi áreiti. Píratar vilja líka efla fræðslu til þjónustuveitenda svo skilningur og þjónusta haldist í hendur. Þess vegna leggja Píratar áherslu á algilda hönnun þannig að umhverfið okkar virki fyrir öll án sérlausna. Betra aðgengi fyrir fólk með skynúrvinnsluvanda felur í raun í sér betri borg fyrir okkur öll þar sem slík hönnun getur líka komið öðrum vel, til dæmis fólki með mígreni eða kvíða. Píratar tóku mikilvægt skref á líðandi kjörtímabili og lögðu fram tillögu um að gera tilraun með skynrými/rólegt svæði á Menningarnótt þar sem gestir og gangandi gætu farið inn og hvílt skynfærin frá hávaða og mannmergð. Í júní á síðasta ári var svo lögð fram bókun í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar þar sem sagði að ráðið hlakkaði til að sjá að aðgerðir frá viðburðarteymi borgarinnar um aðgengi fyrir öll myndu skila sér í aukinni þátttöku og fjölbreytileika á hátíðum borgarinnar. Píratar vilja leggja áherslu á: Fleiri skynrými og róleg svæði í borgarlandinu. Tryggja skýrleika og fyrirsjáanleika á viðburðum og í umhverfinu. Algilda hönnun í net- og raunheimum. Fræðslu til þjónustuveitenda. Bjóða upp á rólegar stundir á söfnum, sundlaugum eða viðburðum þar sem lýsingu, hljóði og mannfjölda er stillt í hóf. Gera aðgengilegar upplýsingar um umhverfið. Hversu bjart, hávært eða þétt má búast við að það verði. Samráð við hagsmunasamtök. Við viljum hanna borgina með skynsegin fólki, ekki bara fyrir það. Píratar vilja halda áfram að besta borgina fyrir skynsegið fólk þannig að við getum öll nýtt okkur þjónustu og skemmtanir borgarinnar og haldið áfram að láta samfélagið okkar vaxa saman. Betri borg fyrir skynsegið fólk er betri borg fyrir okkur öll! Höfundur skipar 5. sæti á lista Pírata fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. [i] Sjá bls. 6 í upplýsingabæklingi Einhverfusamtakanna. Aðgengilegt hér: https://www.einhverfa.is/static/files/skrar/baekl2023/einhverfa_is_2023_web.pdf) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Olga Margrét Cilia Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira