Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Kristján Már Unnarsson skrifar 29. apríl 2026 23:00 Björn Snæbjörnsson er formaður Landssambands eldri borgara. Stefán Jón Ingvarsson Þverpólitísk samstaða hefur náðst á Alþingi um að breyta umferðarlögum þannig að eldri borgarar þurfi mun sjaldnar að endurnýja ökuskírteini sín. Formaður Landssambands eldri borgara segir þetta fagnaðarefni.
Greint frá málinu í kvöldfréttum Sýnar en lagafrumvarp þingmanna úr þremur flokkum undir forystu Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, um að víkka gildistíma ökuskírteina eldri borgara, náði ekki fram í fyrra og var svo endurflutt í haust. Þingmenn umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis hafa núna sameinast um breytingu, þvert á flokka, sem eykur verulega líkur á því að málið verði að lögum. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.Vísir/Vilhelm Landssamband eldri borgara var einmitt með landsfund í dag þegar tíðindi bárust af framvindu þessa hagsmunamáls. Formaðurinn Björn Snæbjörnsson segir núverandi lagaákvæði mjög þröng. „Eftir 75 ára aldur hafa menn þurft að endurnýja á tveggja ára fresti og eftir 80 ár eru menn komnir í eitt ár. Þannig að núna á greinilega að fara að lengja þetta mikið og það er bara fagnaðarefni,“ segir Björn í sjónvarpsfrétt Sýnar: Samkvæmt breytingartillögunni fá þeir sem eru á aldrinum 70 til 75 ára tíu ára gildistíma ökuskírteinis. Gildistími styttist síðan í þrepum með hækkandi aldri, niður í fimm ár við áttrætt og niður í eitt ár við nírætt. „Þetta er bæði mikil réttindabót fyrir aldraða að þurfa ekki að standa í þessum endurnýjunum endalaust. Og þetta er líka sparnaður fyrir ríkið að gefa út þessi vottorð. Og hafa peninga af fólki vegna þess.“ Breytingartillagan sem samstaða náðist um í þingnefndinni.grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Björn bendir á að eldri borgarar í dag séu við mun betri heilsu en áður. Um leið fer þessi hópur ört stækkandi. Sextugir og eldri með íslensk ökuskírteini teljast núna vera um 75 þúsund talsins. „Þetta tefur lækna að vera að gefa út endalaus vottorð, fleiri þúsund á ári. Þetta kostar pening. Svo finnst mörgum eldri borgurum bara erfitt að fara í gegnum þetta, að vera að endurnýja ökuskírteini. Þetta er bara stressvaldandi. Þannig að það er allt jákvætt við að breyta þessu,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara. Frá landsfundi Landssambands eldri borgara í dag.Stefán Jón Ingvarsson
Eldri borgarar Alþingi Umferð Samgöngur Bílpróf Tengdar fréttir Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa lagt fram þingsályktunartillögu með það fyrir augum að innviðaráðherra endurskoði umferðarlög með tilliti til endurnýjunar ökuskírteina hjá eldra fólki. Málið varði hagsmuni eldra fólks og geti dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið. Allir virðast sammála um tímabærar breytingar á reglunum að ræða. 22. september 2025 14:02 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa lagt fram þingsályktunartillögu með það fyrir augum að innviðaráðherra endurskoði umferðarlög með tilliti til endurnýjunar ökuskírteina hjá eldra fólki. Málið varði hagsmuni eldra fólks og geti dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið. Allir virðast sammála um tímabærar breytingar á reglunum að ræða. 22. september 2025 14:02