Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Birgir Olgeirsson skrifar 28. apríl 2026 18:31 Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasvið Samtaka iðnaðarins. Sigurjón Samtök iðnaðarins segja annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar valda vonbrigðum. Pakkinn boði 1.200 til 1.400 íbúðir á ríkisreitum í Reykjavík, en taki ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða erfiðum lánþegaskilyrðum sem halda aftur af sölu nýbygginga.
Húsnæðipakki II svari ekki bráðavanda byggingamarkaðarins að mati Jóhönna Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Stjórnvöld hefðu átt að nota pakkann til að liðka fyrir uppbyggingu strax. Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg kynntu í dag áform um uppbyggingu á sex ríkisreitum og í ríkiseignum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir 220 íbúðum í Borgartúni, 90 við Grensásveg, 100 á efri hluta Laugavegar, 300 við Laugarnesveg, 90 við Seljaveg og 400 til 600 á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra undirrituðu samkomulag um íbúðauppbyggingu í dag. Samtals eru þetta 1.200 til 1.400 íbúðir. Hluti þeirra verður í nýbyggingum en einnig á að breyta húsnæði í eigu ríkisins í íbúðir. Verkefnin eru mislangt komin, íbúðafjöldinn getur breyst í skipulagsferlinu og reitirnir fara í frekari undirbúning eftir að uppbyggingaraðilar hafa verið valdir. „Fyrstu viðbrögð voru ákveðin vonbrigði“ Jóhanna segir að pakkinn skili ekki nægum svörum við stöðunni sem byggingargeirinn standi frammi fyrir núna. „Fyrstu viðbrögð voru ákveðin vonbrigði,“ segir Jóhanna. Reitirnir sem kynntir voru í dag eru margir inni í þéttri byggð og eiga eftir að fara í gegnum skipulagsferli. Reynslan sýnir að slíkur undirbúningur getur tekið tvö til þrjú ár. „Þetta eru flóknar lóðir og það tekur langan tíma að skipuleggja þetta,“ segir hún. Vill að stjórnvöld taki á bráðavandanum Í pakkanum er lögð áhersla á aukið lóðaframboð til næstu ára og hagkvæmt húsnæði fyrir leigjendur, námsmenn, eldra fólk og tekjulægri hópa. Tuttugu til þrjátíu prósent íbúðanna eiga að vera hagkvæmar íbúðir, meðal annars almennar íbúðir, stúdentaíbúðir, íbúðir Félagsbústaða, búseturéttaríbúðir, íbúðir fyrir eldra fólk og íbúðir sem falla undir hlutdeildarlán. Jóhanna segir að stjórnvöld hefðu fremur átt að beina sjónum að því sem tefji uppbyggingu og sölu í dag. „Við hefðum viljað sjá að það væri frekar tekið á þessum bráðavanda sem byggingamarkaðurinn er í núna,“ segir hún. Samtök iðnaðarins hafa lengi varað við áhrifum hærri gjalda og aukins kostnaðar á nýbyggingar. Jóhanna segir stöðuna þrengja að bæði kaupendum og þeim sem byggja. „Gjaldskrár sveitarfélaganna hafa hækkað gríðarlega undanfarin ár. Stjórnvöld eru búin að boða frekari skattahækkanir á byggingariðnaðinn sem við höfum viljað sjá þau hætta við á þessum tímapunkti,“ segir Jóhanna. Óseldar íbúðir tefji næstu verkefni Að mati samtakanna halda erfið lánþegaskilyrði aftur af sölu nýbygginga og tefja þar með frekari uppbyggingu. Ef kaupendur komast ekki í gegnum greiðslumat sitja íbúðir lengur óseldar. „Lánþegaskilyrði Seðlabankans eru mjög erfið um þessar mundir og vextir gera kaupendum erfitt fyrir,“ segir Jóhanna. Hún segir afleiðingarnar þegar sýnilegar á markaðnum. „Þar af leiðandi situr markaðurinn uppi með mikið af óseldum íbúðum,“ segir hún. Vara við milljóna hækkun á hverja íbúð Jóhanna saknar þess sérstaklega að ekki hafi verið tekið á boðuðum skattahækkunum á byggingargeirann. Þar vísar hún til áforma um að hætta endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað. „Við erum að áætla að þetta muni hækka byggingarkostnað um tvær og hálfa til þrjár milljónir per hundrað fermetra íbúð ef af verður,“ segir hún. Að mati Samtaka iðnaðarins ganga slík áform gegn markmiðum um aukið framboð. Hærri byggingarkostnaður skili sér annaðhvort í hærra verði til kaupenda eða minni hvata til að ráðast í ný verkefni. Segir pakkann aðeins ná utan um hluta vandans Jóhanna segir aukið lóðaframboð skipta máli, en að það leysi ekki stöðu allra sem þurfi inn á húsnæðismarkaðinn. Þar þurfi líka að horfa til fólks sem reynir að kaupa á almennum markaði án sértækra úrræða. Eftir standi stór hópur á markaði þar sem kostnaðurinn fari hækkandi. „Eins og mál eru núna er stór hluti kaupenda að fara inn á markað sem er með síhækkandi gjaldtöku og skattahækkanir sem hafa áhrif á byggingarkostnað,“ segir hún.
Byggingariðnaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira