„Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir skrifar 28. apríl 2026 09:42 Dómsmálaráðherra Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður, sá sig knúna til að skrifa facebook færslu sérstaklega um tillögu okkar í Miðflokknum í Kópavogi, um að hækka heimgreiðslur og gera þær að raunverulegum kosti fyrir fjölskyldur. Hún uppnefnir tillöguna ,,snákaolíusölu“. Þar dró hún athyglina í burtu frá hinu raunverulega vandamáli sem er það tómarúm sem myndast á milli fæðingarorlofs og leikskólavistunar barna. Ráðherra virðist ekki vera meðvituð um þá meinsemd sem er í leikskólakerfinu, að ekki er alltaf pláss að fá þegar fæðingarorlofi lýkur. Undirrituð þekkir þær aðstæður ansi vel, enda komust börnin mín inn á leikskóla fyrst 25 mánaða, 21 mánaða og 16 mánaða. Hefðu heimgreiðslur eins og Miðflokkurinn boðar, verið í boði á þeim tíma, hefði róðurinn hjá ungri fjölskyldu verið bærilegri. Hefðum við foreldrarnir þá hvorki þurft að teygja fæðingarorlof okkar né hefðum við þurft að vista tvö af börnum okkar hjá dagforeldri í Grafarvogi, þó við værum búsett í Kópavogi. Verður því að viðurkennast að raunveruleikatenging ráðherrans við málefnið og aðstæður fólks virðist ekkert sérstaklega mikil. Ráðherrann vill nálgast umræðuefnið út frá jafnréttismálum, en boðar enga lausn með þeirri nálgun. Það er sérstök nálgun að ætla ekki að gera neitt, bara í nafni jafnréttis. Það er vissulega rétt hjá ráðherranum að um er að ræða styrk en ekki launagreiðslur og því ekki greidd launatengd gjöld, sem og að lífeyrisréttindi styrkþega skerðast á styrktartímabilinu. Þetta er þó einn valkostur sem foreldrar gætu nýtt sér ef það hentar þeim. Þykir mér þó ólíklegt að þessi valkostur sem foreldrar myndu nýta sér til nokkurra mánaða, muni hafa stórkostleg áhrif á lífeyrisréttindi þeirra í framtíðinni. Dómsmálaráðherra Viðreisnar talaði gegn tillögu Miðflokksins á Alþingi, að tekið yrði upp svokallað 12:0 fæðingarorlofskerfi. Foreldrum væri frjálst að skipta 12 mánuðum fæðingarorlofs að vild. Hún og hennar félagar í Viðreisn voru sérstaklega mótfallin þessari leið. Lét Þorbjörg þau ummæli falla að 12:0 kerfið væri jafn gagnlegt íslenskum almenningi og þegar Danir lögðu Ísland 14:2 í fótbolta. Ráðherra trúir ekki á valfrelsi foreldra, og treystir í raun ekki konum til að taka upplýstar ákvarðanir fyrir sig og sínar fjölskyldur, ólíkt Miðflokknum. Er það því augljóst að ráðherrann lætur jafnréttismálin, eða öllu heldur það sem henni finnst best fyrir konur, vega þyngra en valfrelsi foreldra. Hvernig þau kjósa að haga fæðingarorlofi sínu, heimgreiðslum og í raun þá hvernig fyrstu árum í lífi barna þeirra er háttað ætti einfaldlega að vera þeirra mál. Hún vill ekki taka tillit til mismunandi aðstæðna, því sá sveigjanleiki er ekki í takt við hennar sýn af jafnrétti. Með góðu eða illu skal öllum þrýst í sama formið í nafni rétttrúnaðar í jafnréttismálum. En kannski er sú þvingun að vilja ekki veita foreldrum valfrelsi í þessu tómarúmi, í nafni janfréttis, hin raunverulega ,,snákaolía“? Höfundur er móðir og skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Sjá meira