Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skaga­menn í seinni

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
679482785_35744723488446193_1852790972445709852_n
Vísir/Pawel

Víkingur úr Reykjavík vann öruggan sigur á ÍA, 4-0, í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvelli í kvöld. Víkingur er í öðru sæti deildarinnar með tíu stig og ÍA er áfram í níunda sæti með tvö stig.

Bæði lið fengu prýðis færi í fyrri hálfleik. Gísli Laxdal Unnarsson komst næst því að skora fyrir Skagamenn þegar hann með stuttu millibili átti þrumuskot í stöng og svo skot úr vítateignum sem Ingvar Jónsson varði.

Elías Már Ómarsson hefði svo stuttu síðar, á 37. mínútu, getað náð forystunni fyrir Víkinga en skot hans við markteiginn fór beint á Árna Marinó Einarsson í marki ÍA.

Skagamenn vildu svo fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks þegar Gunnar Vatnhamar rann og sparkaði boltanum í höndina á sér en Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari var ekki á þeim buxunum að flauta á það.

Markalaust var því í leikhléi. Í upphafi síðari hálfleiks fengu bæði lið áfram færi til þess að brjóta ísinn en það var Víkingur sem það gerði á 56. mínútu.

Daníel Hafsteinsson tók þá hornspyrnu frá vinstri, Ármann Ingi Finnbogason tók skot sem Árni Marinó varði og fór lengra út á móti en þaðan barst boltinn til Elíasar Más Ómarssonar sem þrumaði boltanum upp í þaknetið af stuttu færi.

Sjö mínútum síðar tvöfölduðu Víkingar forskot sitt. Elías Már var þá með svæði á vinstri kantinum, gaf fyrir nánast upp í vindinn, boltinn fauk þægilega fyrir Valdimar Þór Ingimundarson sem tók viðstöðulaust skot á lofti nýkominn inn í vítateiginn miðjan og þrumaði boltanum þannig í netið.

Sex mínútum fyrir leikslok innsiglaði varamaðurinn Viktor Örlygur Andrason sigurinn með þriðja marki Víkinga. Hann fékk þá boltann rétt við D-bogann og hamraði hann einfaldlega upp í samskeytin vinstra megin.

Viktor Örlygur lagði svo upp fjórða markið einni mínútu fyrir leikslok. Hann dansaði þá með boltann í vítateig Skagamanna, tók skot eða sendingu sem rataði til Elíasar Más sem renndi boltanum undir Árna Marinó af stuttu færi.

Staðan þá orðin 4-0 og stórsigur Víkingar reyndist niðurstaðan.

Atvik leiksins

Undir lok fyrri hálfleiks vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar Gunnar Vatnhamar skaut í höndina á sér. Hann var þá nýrunninn í bleytunni og setti boltann í stoðhöndina á sér og því var ekki annað að sjá en að rétt var að dæma ekki vítaspyrnu.

Stjörnur og skúrkar

Elías Már Ómarsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en var svo með sýningu í síðari hálfleik þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði annað upp. Elías Már er kominn með fimm mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir Víking.

Viktor Örlygur kom frábærlega inn í leikinn, skoraði stórkostlegt mark og lagði svo upp fjórða og síðasta markið eftir laglegan einleik. Ekkert að því að eiga svona leikmann á bekknum.

Ingvar Jónsson í marki Víkings og miðverðirnir Gunnar Vatnhamar og Róbert Orri Þorkelsson stóðu mjög vel fyrir sínu.

Erfitt er að finna einhvern ákveðinn skúrk í liði ÍA. Víkingar settu einfaldlega í fluggír og sýndu hvers konar botnlausu gæðum þeir búa yfir. Helst má nefna að varnarlína Skagamanna náði sér ekki á strik í síðari hálfleik eftir að hafa staðið vaktina vel í þeim fyrri.

Dómarinn

Sigurður Hjörtur Þrastarson og hans teymi var með allt upp á tíu í þessum leik. Stóra ákvörðunin um að dæma ekki vítaspyrnu á Gunnar Vatnhamar sýndist mér vera rétt og annað var einfaldlega rétt dæmt. Frábærlega dæmdur leikur.

Stemning og umgjörð

Stemningin hefur kannski verið betri í Víkinni en var samt sem áður með miklum ágætum. Víkingar létu vel í sér heyra á löngum köflum og Skagamenn inni á milli en hráslagalegt veðrið hefur vísast aðeins sett strik í reikninginn enda ekki jafn vel mætt á Víkingsvöll og oft áður. Umgjörðin hjá Víkingum er síðan til mikillar fyrirmyndar og vel haldið utan um allt.

Viðtöl

„Sást þú uppgjöf?“

Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA sagði enga uppgjöf hafa verið til staðar hjá sínum mönnum í 4-0 tapi fyrir Víkingi í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvelli í kvöld. Enginn sé þá farinn að örvænta.

„Ég upplifði leikinn þannig að þeir voru ívið betri aðilinn en svo komum við mjög sterkt inn í hann. Mér fannst við vera sterkari aðilinn undir lok fyrri hálfleiks og það var jafnræði með liðunum. Við komum vel sperrtir út í seinni hálfleikinn og mér fannst við alveg fram að fyrsta markinu vera ívið líklegri en þeir ef eitthvað var.

Við vorum að halda boltanum vel, við vorum að skapa okkur færi og vorum að takmarka tækifæri þeirra. En svo skora þeir tvö mörk á stuttum tíma og það sýnir raunverulega styrkleika Víkings. Þeir eru mjög óvægnir, þeir eru mjög góðir í að klára leiki, það er mikil reynsla í þessu liði.

Þeir eru búnir að vera að vinna titla og spila stóra leiki þannig að við lærum klárlega af þessu og lærum af því hvernig þeir klára leikinn. En 4-0 tap gefur ekki rétta mynd af leiknum,“ sagði Lárus Orri í samtali við Sýn Sport.

Hefðum fengið núll stig í 2-0 líka

Spurður hvort hann hafi orðið var við uppgjöf hjá lærisveinum sínum sagði Lárus Orri ákveðinn:

„Nei, ég sá enga uppgjöf. Sást þú uppgjöf? Við vorum komnir 2-0 undir og ætluðum ekkert að sitja til baka. Við stígum upp á þá. 2-0 undir fleytir þér ekki langt, þá bara læturðu vaða og við gerðum það.

Við skiptum ungum, ferskum strákum inn á, fengum ferskar lappir inn og ákváðum að láta slag standa. Það er auðvitað ekki gott að fá á þig fjögur mörk, þú vilt ekki fá á þig fjögur mörk en við hefðum fengið núll stig í 2-0 líka.

Ekki farinn að örvænta

Þá sagði hann alls ekki tímabært að fara að örvænta þó ÍA sé enn í leit að sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni á tímabilinu. Skagamenn eru í níunda sæti með tvö stig.

„Nei, þegar fjórar umferðir eru búnar? Alls ekki. Við höfum verið að spila vel en það hefur ekki skilað stigum. Við verðum að fara að fá stig í hús. Það er alveg klárt mál.

Ég er ekki farinn að örvænta. Núna erum við að fara að greina þennan leik og það er stutt í næsta leik,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson við Sýn Sport. ÍA mætir Stjörnunni á Elkem-vellinum á Akranesi næstkomandi sunnudag.

Mjög sáttur við eigin byrjun

Elías Már Ómarsson átti stórleik fyrir Víking þegar liðið vann öruggan sigur á ÍA, 4-0, í fjórðu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á Víkingsvelli í kvöld. Víkingur er í öðru sæti með tíu stig.

„Líðanin er góð. Þetta voru mikilvæg þrjú stig fyrir okkur. Þetta var svolítið þungt hjá okkur í fyrri hálfleik. Seinustu sendingar voru að klikka og þetta var kannski ekkert frábær leikur í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleik erum við með vindinn í bakið og förum að skjóta aðeins meira. Þegar við gerum það fara mörkin að detta,“ sagði Elías Már í samtali við Sýn Sport eftir leikinn.

Staðan var markalaus í hálfleik en Keflvíkingurinn sagði Víkinga ekki hafa breytt miklu fyrir síðari hálfleikinn þegar flóðgáttir opnuðust og Elías Már skoraði tvö mörk og lagði upp annað.

Fórum að skjóta meira með vindinn í bakið

„Nei, svo sem ekki. Það var náttúrlega mun meiri vindur. Við vorum á móti vindi í fyrri hálfleik. Áherslurnar voru meira og minna að skjóta meira með vindinn í bakið í seinni hálfleiknum. Við fórum að gera það aðeins meira og þá fór þetta að ganga,“ útskýrði hann.

Elías Már er búinn að skora fimm mörk í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum fyrir Víking og er markahæstur í Bestu deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni hjá KR.

„Ég er klárlega ánægður með eigin byrjun. Það er gott að byrja að skora og það snemma í mótinu. Það hjálpar með sjálfstraustið fyrir framhaldið. Ég er mjög sáttur að vera kominn á blað,“ sagði Elías Már Ómarsson við Sýn Sport.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira