Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2026 13:23 Mark Ryans Sessegnon skildi Fulham og Aston Villa að. getty/Ben Whitley Fulham lyfti sér upp í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 sigri á Aston Villa á Craven Cottage í fyrsta leik dagsins. Ryan Sessegnon skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Eftir sigurinn í dag er Fulham með 48 stig, jafn mörg og Chelsea og Brentford. Liðið á eftir að spila fjóra leiki á tímabilinu. Villa er áfram í 4. sæti deildarinnar en liðið hefði komist upp fyrir Manchester United með því að fá stig í leiknum í dag. Liverpool getur komist upp fyrir Villa með sigri á Crystal Palace í dag. Eina mark leiksins kom á markamínútunni, þeirri 43. Timothy Castagne gaf fyrir frá hægri, Sasa Lukic átti skalla sem Emiliano Martínez varði en boltinn hrökk fyrir fætur Sessegnons sem skoraði. Á 65. mínútu skoraði Castagne en markið var dæmt af þar sem Joachim Andersen braut á Martínez. Sóknir Villa það sem eftir lifði leiks báru ekki árangur og Fulham landaði stigunum þremur. Enski boltinn Fulham FC Aston Villa FC