Dramatík á Portman Road Valur Páll Eiríksson skrifar 10. október 2026 16:08 Dara O'Shea skoraði dramatískt sigurmark. Getty Ipswich vann dramatískan 2-1 sigur á lánlausu liði Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jafntefli var á Villa Park og Brighton vann sterkan útisigur.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Ryan Sessegnon Fulham yfir gegn Ipswich með glæsilegu marki en undir lok leiks, á 88. mínútu, jafnaði fílbeinski bakvörðurinn Abdoul Ouattara metin með enn fallegra marki og fagnaði að hætti hússins með flikkflakki. Portman Road ærðist úr fögnuði en ekki minna þegar Dara O‘Shea skoraði sigurmarkið á nítugustu mínútu. Dramatískur viðsnúningur tryggði Ipswich 2-1 sigur og liðið komið með níu stig eftir sex leiki en Fulham með tvö stig í fallsæti. Jafnt á Villa Park Úkraínumaðurinn Yehor Yarmoliuk kom Brentford yfir eftir tíu mínútna leik á Villa Park gegn Aston Villa-liði sem hefur byrjað leiktíðina illa. Það tók þó aðeins tvær mínútur fyrir Nicolas Jackson að jafna leikinn fyrir Villa. 1-1 stóð í hálfleik. Tæpur stundarfjórðungur var eftir þegar Skotinn John McGinn fékk boltann á teignum og negldi hann í markið en örstuttu síðar jafnaði Brentford metin þökk sé marki Norðmannsins Kristoffer Ajer. Leiknum lauk 2-2. Brentford hefur unnið tvo leiki og gert fjögur jafntefli og er með 10 stig í fjórða sæti. Aston Villa er með fimm stig í 14. sæti. Brighton öflugir Umbreyting Maxim De Cuyper úr bakverði í kantmann heldur áfram að skila sér fyrir Brighton en hann skoraði sitt þriðja mark á leiktíðinni til að koma liðinu yfir gegn Sunderland eftir stoðsendingu Pascal Gross. Brighton lék stóran part manni færri vegna rauðs spjalds Pascal Struijk snemma í síðari hálfleik. Liðið hélt hins vegar forystunni á Leikvangi ljóssins og undir lokin innsiglaði Jaouen Hadjam 2-0 sigur gestanna af suðurströndinni. Brighton er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig, aðeins tveimur stigum frá toppliðum Manchester City og Arsenal. Sunderland er með fjögur stig í 16. sæti.
Enski boltinn Fulham FC Ipswich Town FC Aston Villa FC Brentford FC Sunderland AFC Brighton & Hove Albion Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira